Handbolti

Svíar fyrstir í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í dag.
Úr leik liðanna í dag. vísir/afp
Átta liða úrslitin á HM kvenna í handbolta hófust í dag með hörkuleik á milli Svía og Dana.

Sænsku stúlkurnar skrefi á undan nær allan leikinn og lönduðu afar sætum sigri, 26-23. Hanna Blomstrand var valin maður leiksins en hún skoraði sjö mörk fyrir Svía.

Danska liðið átti fína endurkomu á lokamínútunum en liðið fór illa að ráði sínu er það gat minnkað muninn niður í aðeins eitt mark.

Svíar mæta annað hvort Frakklandi eða Svartfjallalandi í undanúrslitunum en þau lið mætast síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×