Bíó og sjónvarp

Suicide Squad langt komin með að slá aðsóknarmet í ágúst

Birgir Olgeirsson skrifar
Jared Leto og Margot Robbie sem Jókerinn og Harley Quinn í Suicide Squad.
Jared Leto og Margot Robbie sem Jókerinn og Harley Quinn í Suicide Squad. Vísir/IMDB
Miðar á kvikmyndina Suicide Squad hafa runnið út eins og heitar lummur í Bandaríkjunum yfir helgina. Stefnir í að myndin þéni um 147 milljónir dala, eða sem nemur um 17 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, yfir helgina og slái þar með met Guardians of the Galaxy frá árinu 2014 fyrir stærstu frumsýningarhelgi ágústmánaðar.

Greint er frá því á Variety að Suicide Squad gangi einnig vel á heimsvísu og hafi nú þegar þénað um 64 milljónir dollara í 17 löndum, þar á meðal Bretlandi, Mexíkó og Spáni.

Áhorfendur hafa ekki verið að setja slæma dóma gagnrýnenda fyrir sig en myndin er með 27 prósent á Rotten Tomatoes-vefnum, sem þýðir að aðeins 27 prósent gagnrýnenda eru jákvæðir í garð myndarinnar.

Suicide Squad er úr DC-myndasagnaheiminum og segir frá hópi fangelsaðra illmenna sem er gefið tækifæri á að milda fangelsisdóma sína gegn því að leggja í mikla háskaför. Á meðal leikara eru Will SmithJared LetoMargot RobbieJoel KinnamanViola DavisJai Courtney og Cara Delevingne.

Myndin hefur náð að skapa sér traustan aðdáendahóp fyrir frumsýningu hennar en tæplega fjórar milljónir notenda hafa líkað við Facebook-síðu myndarinnar. Miðasöluvefurinn Fandango greindi frá því síðastliðinn þriðjudag að aldrei hefðu fleiri keypt miða í forsölu á mynd í ágústmánuði en á Suicide Squad í sextán ára sögu fyrirtækisins. 


Tengdar fréttir

Jókerinn Jared Leto

Kvikmyndin Suicide Squad hefur fengið slæma dóma og hefur vakið nokkra athygli að Jókernum, leiknum af Jared Leto, bregður lítið fyrir í myndinni þrátt fyrir að hann hafi verið auglýstur sérstaklega í öllum stiklum og kitlum sem birtust fyrir útgáfu hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×