Bíó og sjónvarp

Suicide Squad fær hrikalega dóma hjá gagnrýnendum

Birgir Olgeirsson skrifar
Will Smith sem Deadshot og Margot Robbie sem Harley Quinn.
Will Smith sem Deadshot og Margot Robbie sem Harley Quinn. Vísir/IMDB
Nýjasta „ofurhetjumyndin“, Suicide Squad er að fá hrikalega dóma frá gagnrýnendum ytra. Til að taka þá saman og setja í samhengi er hermt að hún sé ekki eins slæm og Batman v SupermanDawn of Justice, sem kom út fyrr í ár og var slátrað af gagnrýnendum, en engu að síður alls ekki góð.

Hér fyrir neðan er farið yfir nokkra dóma og það gæti spillt fyrir áhorfi þeirra sem eiga eftir að sjá myndina og er þeim því ráðlagt að hætta lestri.

Hópurinn sem myndar Suicide Squad.Vísir/IMDB
Suicide Squad er samansafn illmenna úr DC-myndasöguheiminum. Þó hún falli innan ofurhetjugeirans þá verða þessi illmenni sem í myndinni eru seint flokkuð sem hetjur. Í myndinni er illmennunum  gefið færi á að milda fangelsisrefsingu sína með því að taka að sér verkefni sem virðist feigðarför.

Það sem gagnrýnendum heilt yfir líkaði við myndina er persónan Amanda Waller, leikin af Violu Davis, en sú setur saman þetta teymi illmenna. Þá voru gagnrýnendur einnig frekar hrifnir af Margot Robbie í hlutverki Harley Quinn og almennt jákvæðir í garð leikarahópsins en saga myndarinnar sögð úti á þekju og ítrekuð endurlit úr fortíðinni sögð gera lítið annað en að þvæla söguþræðinum.

„Ekki viðbjargandi“

Richard Lawler hjá Vanity Fair segir Suicide Squad vera slæma mynd, og ekki það slæma að hægt sé að hafa gaman að henni.

„Henni er ekki viðbjargandi. Hún er bara slæm. Hún er ljót og leiðinleg.“ 

Alonso Duralde hjá The Wrap segir leikstjórann David Ayer, sem á að baki myndirnar Fury og End of Watch, reyna að setja saman áhugaverðan hóp utangarðsmanna en niðurstaðan en ráði alls ekki við það og reyni að segja allt of mikið á of stuttum tíma.

Matt Singer hjá Screen Crush hefur þetta um myndina að segja: „Bragðdauf, leiðinleg og stundum samhengislaus. Suicide Squad er stórslys sem veldur vonbrigðum.“

Robbie Collin hjá Telegraph segir að þegar myndin sé borin saman við það sem leikstjórinn James Gunn og Marvel Studios náðu að gera með Guardians of the Galaxy þá sé Suicide Squad virkilega pínleg. 

„Maður fær svo mikinn kjánahroll að tennurnar losna.“

Aðdáendur kalla eftir lokun Rotten Tomatoes

Það eru þó ekki allir neikvæðir, þó svo að þeir séu í minnihluta. Á vef Rotten Tomatoes eru teknir saman dómar um myndina og kemur þá í ljós að 36 prósent eru jákvæð í garð hennar. Sem er ekkert stórkostlegt miðað við hve miklu er kostað til. Aðdáendur DC-myndasagna eru þó margir hverjir svo vonsviknir með þessa dóma að þeir hafa komið af stað undirskriftasöfnun sem miðast að því að fá Rotten Tomatoes síðunni lokað.

Hana er að finna á vefnum Change.com en þar er kallað eftir því að Rotten Tomatoes verði lokað því gagnrýnendur gefa DC-myndum svo ósanngjarna dóma.

Hlutur Jókersins

Jared Leto og Margot Robbie sem Jókerinn og Harley Quinn.Vísir/IMDB
Það sem hefur vakið hvað mesta umtalið fyrir frumsýningu þessarar myndar er að Jared Leto leikur Jókerinn og bíða margir spenntir eftir að sjá hann í því hlutverki. Allt kynningarefni fyrir myndina virðist gefa til kynna að hann leiki nokkuð stóran þátt í þessari mynd en gagnrýnendur benda hins vegar á að svo er ekki.

Alonso Duralde hjá The Wrap segir: „Ef plakötin fengu þig til að trúa að þú fengir að sjá mikið af Jared Leto sem Jókerinn þá verður þú fyrir vonbrigðum. Hann er í litlu hlutverki sem hann er til að laða að kvikmyndahúsagesti og væntanlega til að kynna hann inn í DC-myndir framtíðarinnar.“

Angie Han hjá Slash Film segir Leto alls ekki skelfilegan sem Jókerinn en hann komist ekki með tærnar þar sem Heath Ledger hafði hælana sem Jókerinn í The Dark Knight


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×