Fótbolti

Suarez með þrennu í bursti Barcelona

Leikmenn Barcelona fagna einu af mörkum liðsins í kvöld.
Leikmenn Barcelona fagna einu af mörkum liðsins í kvöld. vísir/getty
Luis Suarez skoraði þrennu þegar Barcelona rústaði Real Betis í fystu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar, 6-2.

Arda Turan kom Barcelona yfir á sjöttu mínútu, en Ruben Castro jafnaði metin fimmtán mínútum síðar.

Messi og Suarez bættu við sitthvoru markinu fyrir hlé og meistararnir leiddu því 3-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Suarez og Messi voru svo aftur á ferðinni með sitthvort markið á 56. og 58. mínútu, en Suarez innsiglaði svo þrennuna á 82. mínútu.

Ruben Castro minnkaði muninn fyrir gestina í Betis sex mínútum fyrir leikslok, en lokatölur 6-2 sigur Börsunga.

Þeir byrja tímabilið með stæl, en þeir unnu einnig meistari meistaranna á Spáni fyrr í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×