Körfubolti

Sú besta tók Eurovision-lagið með Frikka Dór eftir leik

Besti leikmaður úrslitaeinvígis Snæfells og Keflavíkur, Kristen McCarthy, kann meira en að spila körfubolta.

Eftir að hún hafði átt stóran þátt í að tryggja Snæfelli Íslandsmeistaratitilinn í gær þá gerði hún sér lítið fyrir og söng Eurovision-lagið hans Friðriks Dórs með stæl.

McCarthy hefur ekki búið lengi á Íslandi en virðist hafa náð ágætum tökum á að syngja íslensku og er ekki feimin við að sýna það eins og hún gerði fyrir karfan.is.

Sönginn má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Ég elska Snæfell og elska að vera í þessum bæ

Snæfell varð Íslandsmeistari í körfubolta kvenna annað árið í röð eftir sigur á Keflavík í lokaúrslitunum, 3-0. Liðið vann með minnsta mun, 81-80, í Stykkishólmi í gær við ærandi fögnuð heimamanna í Hólminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×