Lífið

Sturla Atlas reif þakið af hljóðveri X-ins með óaðfinnanlegum flutningi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurbjartur Sturla Atlason, betur þekktur sem Sturla Atlas, mætti  í hljóðverið á X-inu á laugardaginn og tók lagið Mean 2 U í útvarpsþættinum Kronik.

Kronik er á dagskrá alla laugardaga milli klukkan 17 og 19 en það er Róbert Aron Magnússon sem heldur utan um þáttinn en margir þekkja hann undir nafninu Robbi Kronik.

Hér að neðan má sjá og heyra þennan flotta flutning en Logi Pedro mætti með kappanum í hljóðverið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×