Bíó og sjónvarp

Stunda kynlíf í limmósínu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ný stikla fyrir kvikmyndina Maps to the Stars úr smiðju David Cronenberg lofar góðu.

Í henni sjást meðal annars Robert Pattinson og Julianne Moore stunda kynlíf í limmósínu.

Robert leikur limmósínubílstjóra sem dreymir um að verða leikari. Julianne leikur hins vegar leikkonu sem missti móður sína í eldsvoða. Þau bæði, ásamt fleiri karakterum í myndinni, tengjast saman í gegnum dularfullt leyndarmál.

Myndin verður frumsýnd seinna á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×