Handbolti

Strobel: Landslið Katars eins og félagslið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Martin Strobel í leiknum í gær.
Martin Strobel í leiknum í gær. Vísir/Getty
Martin Strobel, leikmaður þýska landsliðsins, útilokar ekki að Katar verði heimsmeistari í handbolta í dag en liðið mætir í dag Frökkum í úrslitaleik HM.

Vísir ræddi við Strobel eftir leik Þýskalands gegn Slóveníu í gær en með sigri náðu Þjóðverjar að tryggja sér sjöunda sæti mótsins - það síðasta sem veitir öruggan þátttökurétt í undankeppni Ólympíuleikanna 2016.

„Það var gríðarlega mikilvægt að vinna þennan leik, ekki bara til að tryggja okkur inn í undankeppnina fyrir Ólympíuleikana. Þetta var furðulegur leikur gegn Króatíu í gær [fyrradag],“ sagði Strobel í samtali við Vísi eftir leikinn í gær. Þýskaland tapaði fyrir Króatíu á föstudag í fyrri leik liðanna í umspili um sæti 5-8 á HM.

Sjá einnig: Þjóðverjar með öruggt sæti í undankeppni ÓL

„Mér fannst að við ætluðum okkur að spila betur og allir vildu það en það var sama hvað við reyndum, ekkert gekk. Það var allt annað að sjá okkur í dag. Við spiluðum af krafti og án þess að nokkuð væri að halda aftur af okkur. Við áttum skilið að vinna.“

Hann segir erfitt að meta hann sé ánægður með heildarniðurstöðu mótsins enda byrjaði liðið mótið af gríðarlegum krafti, vann sinn riðil og rúllaði svo yfir Egyptaland í 16-liða úrslitunum. Þá kom óvænt tap gegn Katar í 8-liða úrsiltunum.

„Við fengum tækifæri til að komast í undanúrslitin og það hefði verið stórbrotinn árangur hjá okkur. Við spiluðum ekki nógu vel gegn Katar og náðum okkur svo ekki heldur á strik gegn Króatíu. Það var þó jákvætt að við náðum að snúa þessu við í dag og enda mótið á jákvæðum nótum.“

Dagur ræðir við Strobel og Mimi Kraus.Vísir/Getty
Helsta umræðuefni handboltaáhugamanna í dag er uppgangur landsliðs Katars. Liðið er byggt upp á aðkomumönnum og eftir sigur liðsins á Póllandi í undanúrslitum fullyrtu leikmenn Pólverja að dómarar leiksins hafi þegið mútur til að dæma heimamönnum í vil.

Sjá einnig: Svona hafa leikir Katars verið dæmdir

„Maður verður að líta til þess að Katar er einfaldlega lið sem er með sterkan leikmannahóp sem hefur fengið gríðarlega mikinn tíma til að undirbúa sig fyrir mótið. Það hefur verið saman í hálft ár og æft eins og félagslið. Ekkert annað landslið getur leyft sér slíkan munað. Það getur riðið baggamuninn í jöfnum leikjum.“

„Katar hefur þar að auki bætt sig með hverjum leiknum og spilað betur eftir því sem liðið hefur á mótið.“

„Um annað er erfitt að fullyrða mikið. Ég sá ekki leikinn gegn Póllandi og get ekki metið hvernig dómgæslan var í þeim leik. Í leiknum gegn okkur [í 8-liða úrslitum] var mikill hiti í mönnum og mikil læti í höllinni en ég held að við gerðum nógu mörg mistök í leiknum til að geta sjálfum okkur um kennt.“

„Við verðum bara að sjá til hvernig úrslitaleikurinn þróast og hvernig þetta verður. Það er erfitt að ímynda sér að Katarar verði heimsmeistarar en af hverju ekki - þeir eru komnir í úrslitaleikinn.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×