Strákarnir okkar

Fréttablaðið Aðsendar greinar 25. janúar 2012 06:00
Andri Snær Magnason rithöfundur.
Andri Snær Magnason rithöfundur.
Andri Snær Magnason skrifar:
Myndin hér fyrir neðan er af svokölluðu Gullaldarliði Fylkis sem varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1986 – þegar þeir voru 13 og 14 ára. Morgunblaðið og DV lögðu heilsíður undir þennan úrslitaleik og Halldór Halldórsson á DV kallaði þá aldrei annað en Gullaldarlið Fylkis. Á þessum árum spilaði meistaraflokkurinn ýmist í annarri eða þriðju deild. Strákarnir höfðu engar glæstar fyrirmyndir til að miða sig við en ég man að ég hugsaði þegar þeir unnu þennan fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins: Ef strákarnir verða áfram jafn góðir og jafnaldrarnir í KR og ÍA ætti Fylkir séns á Íslandsmeistaratitli árið 2000. Þeim sem horfði eingöngu á meistaraflokkana spila í þriðju deild hefði þótt slíkar væntingar fáránlegar.

Þessi samanburður flaug mér í hug þegar niðurstöður um læsi ungra pilta birtust nýlega. Alþjóðlegar Pisa kannanir sýndu að um 23% 15 ára stráka á Íslandi teldust ekki geta lesið sér til gagns á móti 9% stúlkna. Þessi þrefaldi kynjamunur er athyglisverður, vegna þess að kynin eru saman í bekk, sitja í sömu tímum, hafa sömu kennslubækur og búa við sömu aðstæður. Þetta ólæsi veldur lélegum árangri í stærðfræði – vegna þess að strákarnir eiga erfitt með að skilja orðadæmi.

Í nágrannalöndum okkar fer veraldlegur auður yfirleitt saman við menntastig og læsi. Hér á landi er þessu öfugt farið. Við erum eina landið í Pisa könnuninni þar sem tengslin eru neikvæð. Því meiri veraldlegar eigur á heimili, því meiri líkur á lélegum árangri í lesskilningi. Mælingar benda til þess að lestur framhaldsskólanema fari minnkandi en á sama tíma hafa fjárveitingar til skólabókasafna dregist saman. Í íslenskum grunnskólum er minni tíma varið til móðurmálskennslu en í grunnskólum annars staðar á Norðurlöndum og kennaraefni hér á landi fá sífellt minni menntun í íslensku.

Ég velti fyrir mér – ef staðan er svona núna – hvernig verður staða Íslands eftir 15 ár ef þessar niðurstöður eru ekki teknar alvarlega? Ef þetta endurtekur sig ár eftir ár? Höfum við efni á að sóa hæfileikum fjórðungs drengja af heilli kynslóð? Ef menntun er grundvöllur hagsældar – og lestur er grundvöllur menntunar – hvernig verður hagvöxturinn ef fjórðungur strákanna hefur engan aðgang að rituðum upplýsingum heimsins? Ef læsi er grundvöllur fyrir upplýstu lýðræði – hvað kjósa menn eftir 15 ár? Og ef staðan er svona meðal íslenskra drengja – hvernig er hún þá meðal barna sem eru af erlendu bergi brotin? Hversu hörmulega höfum við þá brugðist þeim og framtíðarmöguleikum þeirra?


Gullaldarlið Fylkis varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1986.
Gullaldarlið Fylkis varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1986.
Kynjamunur af þessu tagi er algengur á hnignandi jaðarsvæðum um víða veröld. Þar sem strákarnir ætla sér beint í skógarhöggið, verksmiðjuna eða námuna en stelpurnar sjá menntun sem leið til að komast burt og ná sér í maka og betra líf annarsstaðar. En þessi munur sést hér í Reykjavík – þar sem engin augljós störf bíða þeirra sem ekki afla sér menntunar. Stelpurnar hljóta þá að fara ef strákarnir hafa tekið ákvörðun um að verða andlegir eftirbátar þeirra. Það má velta fyrir sér hvort óbeit á jafnréttisbaráttu sem hefur verið ríkjandi hjá ungum strákum megi túlka sem ómeðvituð viðbrögð við þessu ástandi.

Fylkir hefur verið í fyrstu deild frá árinu 1999 – liðið hefur verið hársbreidd frá Íslandsmeistaratitli en bikartitilinn hafa þeir unnið í tvígang. Uppistaðan í því liði var gullaldarliðið frá 1986 – Kiddi, Tóti, Gunni og Finnur ásamt yngri strákum sem litu upp til þeirra. Einhver gæti sagt að gott fótboltalið sé óhjákvæmilegt í barnmörgu og vaxandi hverfi – en sú er alls ekki raunin. Breiðholtið er stærra en Árbærinn og þar hefur sami árangur ekki náðst. Gullaldarstrákarnir urðu ekki svona góðir vegna þess að það voru leikfimitímar í Árbæjarskóla. Sigursteinn var frábær kennari – en það þarf meira til ef menn vilja skara framúr.

Þennan árangur má fyrst og fremst þakka áhuga foreldra og endalausri sjálfboðavinnu hugsjónamanna sem störfuðu fyrir Fylki. Áhugi fjölmiðla var strákunum hvatning, heilsíður í DV og Mogga skiptu máli. Aðstaða þeirra til æfinga var ekkert til að hrópa húrra fyrir – þótt rauðamölin væri óvenju góður malarvöllur var aðstaðan stórbætt með samhentu átaki. Allt bendir til þess að sambærilega vinnu þurfi í samfélaginu öllu til að tryggja læsi og lestur. Strákarnir þurfa fyrirmyndir og hvatningu – ekki síst heima hjá sér, ekki síst frá feðrum sínum og þeir þurfa góðar bækur.

Ég hef stundum spurt fólk: Hvað heita mest lesnu bækur á Íslandi? Yfirleitt hefur fólk svarað: Símaskráin? Biblían? Arnaldur? En mest lesnu bækur á Íslandi hafa sjaldan fengið umfjöllun í fjölmiðlum og þær fá aldrei dóma. Þær heita nöfnum eins og Sproti, Glimrende, Matrix, Mályrkja, Lífheimurinn, Glói Geimvera. Ég hef aldrei séð umfjöllun um þessar bækur, aldrei séð sérfræðinga eða kennara velta fyrir sér hvort þær teljist góðar eða slæmar, skemmtilega eða leiðinlega skrifaðar. Hvort þær séu úreltar, hvort þær mættu vera fleiri og fjölbreyttari og hvaða höfundar eru bestir.

Ætla má að 40.000-60.000 börn lesi bók sem er notuð í 10-20 ár. Á meðan Arnaldur semur nýja bók á hverju ári þykir æskilegt að nýta kennslubækur sem lengst, það hefur þótt óþarfa kostnaður að semja og prenta bók fyrr en gamla upplagið er dottið í sundur. Það var til dæmis áfall þegar Berlínarmúrinn féll og allar landafræðibækur urðu úreltar. Ef eitthvað er verra en sögulegur atburður sem eyðileggur sögubækurnar þá eru það ungir fræðimenn sem kollvarpa gömlum sannindum.

Skólabækurnar eru aldrei settar í samhengi við góðan eða slakan árangur í alþjóðlegum könnunum. Hvaða bækur nota þjóðir sem standa sig best? Við ræðum aldrei hvaða viðmið við eigum að nota þegar kemur að menntun. Hver skilgreinir hvað börn eiga að vita og kunna? Furðufiskar og lífríkið í hafinu kringum Ísland ætti að vera örvandi fyrir ímyndunaraflið. Ættu 10 ára krakkar á Íslandi ekki að hafa æði fyrir fiskum eða hvölum?

Þeir ættu allir að vilja verða kafarar og sjávarlíffræðingar. Eða hvað? Ákvað einhver að þeir ættu ekki að hafa áhuga? Eða erum við almennt hlutlaus og meðvitundarlaus um menningarheim barna og unglinga? Eldvirkni og eldgos síðustu ára ættu að fylla þá löngun til að verða jarðfræðingar og vísindamenn. Íslendingasögurnar og bókmenntirnar eiga að fylla þá draumum um að verða skáld eða fornleifafræðingar. Hversu margar bækur ættu grunnskólakrakkar að fá til eignar? Hvort myndi duga þeim lengur – ipad eða 300 blaðsíðna bók í lit um allt sem viðkemur eldgosum, regnskógum og furðufiskum?
Strákarnir okkar hafa tileinkað sér margt í nútímatækni og heimurinn er fullur af spennandi tækifærum og flottum græjum. Séu þær notaðar rétt geta þær gert okkur læsari, klárari og auðugri menningarlega. Þær gefa okkur áður óþekkt vald til að skapa og miðla. Möguleikar til að fræðast um heiminn og tengjast fólki um víða veröld eru meiri en nokkru sinni fyrr. En mikilvægustu upplýsingarnar eru ekki á Youtube. Sá sem ekki hefur þjálfað sig í lestri hefur takmarkaðan aðgang að heimi vísinda, tækni og heimspeki. Aðgangur að trúarbrögðum, ljóðlist og hugmyndasögu heimsins verður lítill sem enginn. Ef Ísland á að eignast góða kennara, eðlisfræðinga, hjúkrunarfræðinga og verkfræðinga verðum við að vera læs og víðlesin. Læsi er lykillinn að erlendum tungumálum, án læsis getum við ekki ræktað okkar eigin sögu, tungu og menningu. Án færni í eigin móðurmáli er erfitt að miðla hugsunum sínum og hugmyndum í rituðu og mæltu máli.

Margir hafa spjarað sig í lífinu ólæsir – en þessi hópur sem nú mælist illa læs er svo stór að það má líkja ástandinu við áskapaða fötlun eða vítavert sinnuleysi. Í þessum fjórðungi stráka sem ekki geta lesið sér til gagns liggur stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar – tækifærin eru svo mörg að þau fylla heilu bókasöfnin. Ef ekki er brugðist við af krafti blasir við að strákarnir okkar og þjóðin öll – falli niður í þriðju deild.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

"Maladomestica 10 punktar“

Blaðamaður hringdi og sagðist hafa fyrir því heimildir að á morgun (23. feb. '12), birtist...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Skulda- eða evrukreppa?

Einkenni núverandi heimskreppu er erfið skuldastaða einstakra ríkja. Ekki er hægt að tengj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Er hægt að færa niður skuldir almennings án þess að nokkur beri kostnaðinn?

Kröfur um almenna niðurfellingu skulda eru háværar og reglulega koma ýmsir fram sem telja ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Ofurskattur á samgöngum

Á dögunum birti Capacent niðurstöður úr könnun um ferðavenjur íbúa höfuðborgarsvæðisins er...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Dagur hinna slæmu "túrverkja“

Ég vakna upp við skerandi sársauka. Ég teygi mig eftir verkjatöflunum og skelli í mig tvei...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Þjóð of heimsk fyrir lýðræðið

Áberandi er andstaða stjórnarandstöðunnar við frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnars...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Samkeppnislög skipta miklu máli á flugmarkaði

Þann 9. febrúar sl. féll dómur í Hæstarétti Íslands þar sem staðfest er að Icelandair hafi...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Kyn og loftslagsbreytingar, verkefni í Úganda

Áhrif loftslagsbreytinga verða líklega meiri á konur en karla, ekki síst í fátækari ríkjum...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 13:48

Sagan af Jóni og Ingjaldi

Ötull maður sem hét Jón bjó á ónefndum stað á landinu. Hann var iðinn og duglegur á allan ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 12:59

Heimilin í heljargreipum

Ríkisstjórn Íslands færði kröfuhöfum, fjárglæframönnum, vogunarsjóðum og hrægömmum, heimil...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 11:00

Hatur og málfrelsi

Ég er einn þeirra sem er orðinn leiður á því að sitja undir því að Snorra í Betel finnist ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Hvað tefur, Ögmundur?

Í nýjasta hefti Læknablaðsins er einkar áhugaverð grein eftir Þórodd Bjarnason og Svein Ar...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Ónóg vernd gegn mismunun

Í fjórðu skýrslu ECRI um Ísland, sem kom út í vikunni, kemur fram að ECRI telur að 65. gre...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Við mótum framtíðina

Merki eru um að heldur sé að lifna yfir íslenskum þjóðarbúskap. Tvísýnt er þó um hversu vi...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Nýtingarsamningar sem framtíðarleið

Hér fer á eftir tillaga að leið sem er ætlað að skapa jafnræðisgrundvöll fyrir útgerðarfyr...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Skráargatið

Flestir eru sammála um að heilsan er ein aðalforsenda góðra lífsgæða. Ánægjulegt er að fyl...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 15:39

Hvernig getur "Liberal Democrats" lagt grunn að siðbót fyrir íslenskt samfélag

Komið hefur fram áður að „Liberal Democrats" standi fyrir lýðfrelsi eða þáttökurétt ...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 14:15

Náttúruminjasafn Íslands

Fyrir skömmu sendi Ríkisendurskoðun frá sér skýrslu u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Hverjir mega stela?

Síðastliðinn fimmtudag birtist í Fréttablaðinu grein eftir Helga Jóhannesson hæstaréttarlö...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Af hverju læra börn ekki að lesa?

Svarið er þversagnakennt: Af því að þau lesa ekki nóg. Sökin liggur víða. Hjá skólum að þv...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Guðríður nýtur mikils trausts

Fróðlegt hefur verið að fylgjast með atburðarás og pólitískri umræðu síðan meirihlutinn í ...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Af fæðuöryggi Íslendinga og byggðarsjónarmiðum

Í Fréttablaðinu 27. janúar sl. heldur efnahags- og viðskiptaráðherra því fram að ekki sé r...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Gegnheilt orðspor er ómetanlegt

Hver holskeflan af annarri hefur riðið yfir fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og einstakl...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Lífeyriskerfið þarf að endurmeta

Róttækrar hugsunar er þörf til að endurskipuleggja lífeyriskerfi landsmanna. Í ljósi reyns...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Staða lánþega er skýr

Það er eitt atriði í nýföllnum vaxtadómi sem skiptir öllu máli varðandi túlkun á heildarni...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Þjóðleikhúsið eða Skjár Einn?

Í Fréttablaðinu 6. febrúar sl. var sagt frá því í forsíðufrétt, að haustið 2009 hafi fullt...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Nýr spítali – já takk!

Á undanförnum dögum og vikum hefur töluvert verið rætt og ritað um nýjan Landspítala við H...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Ávísun á tóman hatt

Fjölmiðlar hafa nýlega fjallað um lán sem íslenskir bankar veittu til kaupa á eigin bréfum...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Unglingar í Reykjavík eiga það besta skilið

Unglingar í Reykjavík sýna okkur á hverjum degi hvað þeir eru frábærir. Þeir bæta sig í ná...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Sex þúsund tonn af sælgæti – Sex þúsund tonn af grænmeti

Í landskönnun á mataræði 2010 - 2011, sem Embætti landlæknis, Matvælastofnun og Háskóli Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Alvarlegar rangfærslur Sóttvarnarlækna um eiturefni í bóluefnum

Í grein í Fréttablaðinu sem birtist þann 27. desember sl. fara þeir Haraldur Briem og Þóró...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 11:24

Annars konar upplýsing

Nú nýlega var Tryggva Má Sæmundssyni framkvæmdastjóra ÍBV, Elliða Vignissyni bæjarstjóra V...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:15

Kaup á vændi af barni

Dómur Héraðsdóms Vesturlands frá 9. febrúar síðastliðnum, þar sem maður er sakfelldur fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:15

Nei Jóhanna

Eitt helsta viðfangsefni ríkisvaldsins allt frá hruni hefur verið að leita leiða til að en...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:00

Nýtingarsamningar

Frumvarp um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi verður lagt fyrir Alþingi í febrúar ef allt ge...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:00

Opinn aðgangur er hagur almennings og fræðimanna

Flestir þeir sem þurft hafa að afla sér þekkingar á netinu rekast fljótlega á veggi þar se...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:00

Sýndarsamráð

Mikil óánægja er ríkjandi í mörgum hverfum Reykjavíkur vegna vinnubragða meirihluta Samfyl...  

Meira
Aðsendar greinar 18. feb. 2012 06:00

Straumhvörf í stéttabaráttu

Nú hafa Hagsmunasamtök heimilanna (HH) talað fyrir réttlætiskröfum um almennar leiðrétting...  

Meira
Aðsendar greinar 18. feb. 2012 06:00

Sanngjörn skipting: 82% - 18%?

Á síðustu 20 árum hefur fjöldi ferðamanna til Íslands fjórfaldast úr 150 þús. í 600 þús. &...  

Meira
Aðsendar greinar 18. feb. 2012 06:00

Lækkun húsnæðisskulda

Umræðan um almenna lækkun húsnæðisskulda landsmanna heldur áfram. Stjórnvöld þykjast hafa ...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 12:01

Vinnufélagar dómara

Hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, og Viðar Már Matthíasson...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Réttur lánþega tryggður

Eitt helsta viðfangsefni ríkisstjórnar og Alþingis allt frá hruni hefur verið að leita lei...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Stattu upp!

Með nýju ári óx þjónustusvæði Strætó til muna með samningum fyrirtækisins við Samtök sveit...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Verðtrygging er ekki lögmál

Þegar verðtryggingu var komið á var um neyðarráðstöfun að ræða sem tryggja átti sparifé, l...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Hverahlíð bíði betri tíma

Hugmyndir um sérstaka verkefnisfjármögnun á Hverahlíðarvirkjun eru nú ræddar í stjórn Orku...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Orkan er takmörkuð auðlind

Orka frá vatnsafls- og jarðvarmavirkjunum er takmörkuð auðlind. Við byrjuðum stórvirkjanir...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 16:00

Felulitir

Frægt er um allt land að sveitarkassinn okkar Álftnesinga tæmdist. Þar að auki náði skulda...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 16:00

Sæll aftur Sighvatur Björgvinsson

Mikið bar á Sighvati Björgvinsyni í Silfri Egils á sunnudag. Hann tilheyrir þeim hópi fólk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 06:00

"Hækkun í hafi“?

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna lofaði fyrir þremur árum, í stjórnarsáttmála, a...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 06:00

Hagsmunir barna eftir skilnað

Börn fráskilinna foreldra á Íslandi hafa yfirleitt fasta búsetu hjá móður sinni en heimsæk...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Strákarnir okkar