Íslenska karlalandsliðið í handbolta stendur í ströngu í Laugardalshöllinni klukkan 18.30 í kvöld þegar liðið mætir Hollandi í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í úrslitakeppni HM 2013 á Spáni.
Þetta er í tíunda sinn sem Strákarnir okkar taka þátt í svona umspili og í átta af níu skiptum hefur íslenska landsliðið tryggt sér sæti á stórmóti. Eina skiptið sem klikkaði var umspilið um sæti á HM 2009 þegar liðið datt út á móti Makedóníu.
Umspilsleikirnir á móti Hollandi verða þeir fyrstu frá því að liðið tapaði á móti Makedóníu sumarið 2008 en nú líkt og þá var íslenska landsliðið nýbúið að tryggja sér sæti á Ólympíuleikum.
Það hafa ekki verið umspilsleikir fyrir síðustu tvær Evrópukeppnir og Ísland komst beint inn á HM 2011 eftir frábæran áangur á EM í Austurríki 2010.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig leikir íslenska landsliðinu hafa farið í umspilum stórmóta frá og með EM 2000.
Íslenska landsliðið í umspili síðustu ár:
EM 2012 Engir umspilsleikir
HM 2011 Fór beint á HM
EM 2010 Engir umspilsleikir
HM 2009 Makedónía, komst ekki áfram (26-34, 30-24 heima = 56-58)
EM 2008 Serbía, komst áfram (29-30, 42-40 heima = 71-70)
HM 2007 Svíþjóð, komst áfram (32-28, 25-26 heima = 57-54)
EM 2006 Hvíta-Rússland, komst áfram (33-24 heima, 34-31 = 67-55)
HM 2005 Ítalía, komst áfram (37-31, 37-25 heima = 74-56)
EM 2004 Fór beint á EM
HM 2003 Makedónía, komst áfram (35-30, 33-28 heima = 68-58)
EM 2002 Hvíta-Rússland, komst áfram (30-23, 26-27 heima = 56-50)
HM 2001 Makedónía, komst áfram (26-25, 38-22 heima = 64-47)
EM 2000 Makedónía, komst áfram (32-23 heima, 29-32 = 61-55)
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Kielce, lið Þóris Ólafssonar, er aðeins einum sigri frá pólska meistaratitlinum í handbolta en liðið er komið í 2-0 í úrslitarimmunni gegn Wisla Plock.
Meira
Rhein-Neckar Löwen undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar vann á sunnudaginn EHF-bikarinn eftir 26-24 sigur á Nantes í Frakklandi. Titillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í ellefu ára sögu þess...
Meira
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Tvis Holstebro í 23-27 tapi gegn Midtjylland í fyrri úrslitaleik liðanna um danska meistaratitilinn.
Meira
Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen urðu í dag Evrópumeistarar í handknattleik eftir 26-24 sigur á Nantes í úrslitaleik EHF-bikarsins í Frakklandi.
Meira
Rhen-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta á morgun eftir að hafa sigraði Göppingen 28-22 í undanúrslitum í Nantes í dag.
Meira
Nantes er komið í úrslit EHF-bikarsins eftir góðan 26-20 sigur á danska liðinu Team Tvis Holstebro en úrslitahelgi EHF-bikarsins er leikin í Nantes.
Meira
Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin...
Meira
Arnór Atlason er kominn á fulla ferð eftir hásinarslit og hann skoraði fimm mörk í kvöld þegar Flensburg-Handewitt vann ellefu marka útisigur á TV 1893 Neuhausen, 37-26.
Meira
Ólafur Stefánsson verður formlega kvaddur þegar Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni EM 2014 þann 16. júní næstkomandi. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni.
Meira
Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands.
Meira
Alfreð Gíslason vann á þriðjudagskvöldið sinn tíunda stóra titil sem þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Aðeins fimm tímabil eru síðan hann tók við og á þeim tíma hefur liðið náð í meira en 91 prósent st...
Meira
Aron Pálmarsson varð Þýskalandsmeistari í þriðja sinn með Kiel í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen og Kiel búið að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að liðið eigi ...
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér í gær þýska meistaratitilinn í handbolta. Kiel vann sannfærandi sex marka sigur á Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen,...
Meira
Alfreð Gíslason gerði Kiel að þýskum meisturum í handbolta í fjórða sinn á fimm árum í kvöld þegar liðið vann sex marka sigur á Rhein-Neckar Löwen í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar.
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér þýska meistaratitilinn annað árið í röð í kvöld með því að vinna öruggan og sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen. Alfreð lenti í bjórstur...
Meira
Kiel tryggði sér í kvöld þýska meistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sex marka sigur á heimavelli á móti Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25. Kiel er með fim...
Meira
Füchse Berlin komst upp í 3. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir þriggja marka heimasigur á SC Magdeburg í kvöld, 29-26. Füchse Berlin hefur einu stigi meira en Flensburg-Handewitt sem á l...
Meira