Handbolti

Strákarnir byrja gegn Noregi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslensku strákarnir gulltryggðu sér sæti á EM með sigri á Svartfjallalandi í Laugardalshöllinni.
Íslensku strákarnir gulltryggðu sér sæti á EM með sigri á Svartfjallalandi í Laugardalshöllinni. vísir/ernir
EHF, evrópska handknattleikssambandið, hefur gefið út leikjaniðurröðun fyrir riðlakeppnina á EM 2016 í Póllandi.

Ísland er í B-riðli með Króatíu, Hvíta-Rússlandi og Noregi en þetta er níunda Evrópumótið í röð þar sem Ísland er á meðal þátttökuþjóða.

Strákarnir hefja leik gegn Norðmönnum föstudaginn 15. janúar 2016.

Tveimur dögum síðar mætir Ísland Hvíta-Rússlandi og íslenska liðið endar svo riðlakeppnina á leiknum við Króatíu, þriðjudaginn 19. janúar.

Leikjaniðurröðunina í heild sinni má með því að smella hér.

Leikir Íslands í B-riðli:

Ísland-Noregur - 15. janúar, kl. 17:15

Ísland-Hvíta-Rússland - 17. janúar, kl. 15:00

Ísland-Króatía - 19. janúar, kl. 19:30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×