Körfubolti

Stóru skotin fóru ekki ofan í hjá Jakobi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob og félagar eru farnir í frí.
Jakob og félagar eru farnir í frí. mynd/borås
Jakob Örn Sigurðarson axlaði ábyrgðina fyrir Borås í sænska körfuboltanum í kvöld en hafði ekki erindi sem erfiði.

Þá tapaði liðið, 73-71, gegn Södertalje í undanúrslitum sænska boltans. Södertalje vann því rimmu liðanna, 4-1, og er komið í úrslitaeinvígið á meðan Jakob og félagar fara í frí.

Jakob tók tvö síðustu skot Borås í leiknum og þar af þriggja stiga skot á síðustu sekúndunni en skotin vildu ekki niður hjá honum.

Jakob fann sig ekki jafn vel í þessum leik og oftast í vetur. Skoraði 5 stig og tók 3 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×