Stórstjörnurnar ekki í vandræðum í Melbourne | Annarri umferð lokið

Vísir Sport 19. janúar 2012 13:00
Andy Roddick varð að hætta keppni vegna meiðsla.
Andy Roddick varð að hætta keppni vegna meiðsla. Nordic Photos / Getty Images
Annarri umferð á opna ástralska meistaramótinu í tennis er nú lokið en allar helstu tennisstjörnur heimsins komust nokkuð auðveldlega áfram í þriðju umferðina.

Sterkustu 32 keppendum mótsins er raðað inn í mótið samkvæmt styrkleikaröð sem byggir á heimslistanum í tennis. Er það gert til að forðast að bestu tenniskappar heims mætist snemma í mótinu. Af þeim eru 20 karlar og 20 konur komnar áfram í þriðju umferðina sem er 32-manna úrslitin í einliðaleik karla og kvenna.

Í karlaflokki féll Bandaríkjamaðurinn Mardy Fish (8. sæti) úr leik er hann tapaði fyrir Kólumbíumanninum Alejandro Falla í þremur settum. Annar Bandaríkjamaður, Andy Roddick (15. sæti) er einnig úr leik en hann varð að gefa viðureign sína gegn heimamanninum Lleyton Hewitt vegna meiðsla.

Hewitt var eitt sinn einn besti tenniskappi heims en er nú ansi neðarlega á heimslistanum. Hann fékk svokallaðan Wild Card-þátttökurétt á mótinu og er nú kominn áfram í þriðju umferð, heimamönnum til mikillar ánægju. Þar mætir hann Kanadamanninum Milos Raonic (23. sæti) sem þykir mikið efni en hann er 21 árs gamall.

Fjórir efstu menn heimslistans - Novak Djokovic, Rafael Nadal, Roger Federer og Andy Murray - hafa ekki lent í teljandi vandræðum með sína andstæðinga en Federer þurfti ekki einu sinni að spila í annarri umferð. Andstæðingur hans, Þjóðverjinn Andreas Beck, gat ekki spilað vegna meiðsla í baki.

Í kvennaflokki kom helst á óvart að hin ítalska Francesca Schiavone (10. sæti), sem fagnaði sigri á opna franska meistaramótinu árið 2010, féll úr leik en hún tapaði fyrir löndu sinni, Romina Oprandi.

Þekktustu tenniskonur heims - Caroline Wozniacki (1. sæti), Maria Sharapova (4. sæti), Kim Clijsters (11. sæti) og Serena Williams (12. sæti) eru allar komnar áfram en systir þeirra síðastnefndu, Venus Williams, hefur ekkert keppt síðan í september á síðasta ári vegna veikinda. Hún stefnir þó að því að spila á ný strax í næsta mánuði.

Í nótt féll síðasta ástralska konan af alls átta úr leik í keppninni er Jelena Dokic, sem er reyndar fæddur Serbi, tapaði fyrir Mation Bartoli.

Keppni heldur áfram í nótt en þá hefjast 32-manna úrslitin. Sýnt er beint frá keppninni á Eurosport og Eurosport 2.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um keppnina á heimasíðu hennar sem og á Wikipedia-vefritinu.

Fleiri fréttir - Sport

Sport 26. maí. 2012 07:45

Hrafnhildur setti Íslandsmet í 50 metra bringusundi

Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar setti nýtt Íslandsmet í 50 metra bri...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 08:35

Sarah Blake tryggði sér sæti í undanúrslitum | Ragnheiður fjarri sínu besta

Sarah Blake Bateman tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum í 50 metra skriðsundi á Evró...  

Meira
Sport 26. maí. 2012 07:57

Árni Már komst ekki í undanúrslit

Árni Már Árnason úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar hafnaði i 24. sæti af 48 keppendum í u...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 16:45

Ingibjörg Kristín náði tíunda sætinu í 50 metra baksundi

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir komst ekki í úrslitasundið í 50 metra baksundi á EM í 50 metr...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 16:35

Hrafnhildur í 5. sæti í 200 metra bringu á EM - setti Íslandsmet

Hrafnhildur Lúthersdóttir setti nýtt Íslandsmet og náði fimmta sætinu í 200m bringusundi k...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 09:42

Sindri Þór í 44. sæti í 100 metra flugsundi

Sindri Þór Jakobsson hafnaði í 44. sæti af 53 keppendum í undanrásunum í 100 metra flugsun...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 09:31

Ingibjörg Kristín í undanúrslit í 50 metra baksundi

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar tryggði sér í morgun sæti í undan...  

Meira
Sport 25. maí. 2012 09:20

Eygló endaði í 22. sæti í 200 metra skriðsundi á EM

Þrjár íslenskar sundkonur kepptu í 200 metra skriðsundi í morgun á Evrópumeistaramótinu se...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 17:35

Hrafnhildur komst í úrslit á EM

Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir gerði sér lítið fyrir í dag og komst í úrslit í 200 me...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 12:45

Sindri bætti norska metið í 200 m flugsundi | Á líka íslenska metið

Sundkappinn Sindri Þór Jakobsson á nú gildandi met í 200 m flugsundi í tveimur löndum efti...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 12:15

Þrjár borgir eftir í baráttunni um ÓL 2020

Framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíusambandsins hefur staðfest að Doha og Bakú koma ekki lengur...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 09:00

Sarah Blake komst ekki áfram

Sarah Blake Batman var rúmri sekúndu frá Íslandsmeti sínu í 100 m flugsundi á EM í Debrece...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 07:54

Hrafnhildur aftur í undanúrslit

Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH, komst í morgun í undanúrslit á EM í 50 m laug í...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 06:00

Óðinn og Ásdís verða með í Dalnum í kvöld

Ólympíufararnir Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH og Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni verða bæði...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 09:13

Sigrún Brá langt frá sínu besta

Sigrún Brá Sverrisdóttir náði sér ekki á strik í 800 m skriðsundi á EM í 50 m laug í Debre...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 08:43

Systurnar komust ekki áfram

Systurnar Eygló Ósk og Jóhanna Gerða Gústafsdætur kepptu báðar í 100 m baksundi á EM í Ung...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 08:25

Jakob Jóhann dæmdur úr leik

Jakob Jóhann Sveinsson var dæmdur úr leik í 100 m bringsundi á EM í Ungverjalandi í morgun...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 22:45

Áfengisbann hjá Rússum á ÓL í sumar

Það verður ekkert agaleysi í herbúðum rússneska Ólympíuhópsins í sumar. Búið er að setja a...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 15:45

Hrafnhildur komst ekki í úrslitin

Hrafnhildur Lúthersdóttir hafnaði í fjórtánda sæti í undanúrslitum í 100 m bringusundi á E...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 09:57

Anton náði ekki að bæta Íslandsmetið

Anton Sveinn McKee hafnaði í 20. sæti í 1500 m skriðsundi á EM í Debrecen í Ungverjalandi....  

Meira
Sport 22. maí. 2012 09:04

Eva náði B-lágmarki fyrir London

Eva Hannesdóttir, sundkona úr KR, bætti sinn besta árangur í 100 m skriðsundi á EM í sundi...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 08:15

Hrafnhildur setti nýtt Íslandsmet og komst í undanúrslit

Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti í morgun Íslandsmetið í 100 m bringusundi á EM í Debrecen ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 16:36

Íslenska sveitin bætti metið aftur

Ísland hafnaði í áttunda sæti í úrslitum í 4x100 m skriðsundi á EM í Debrecen í Ungverjlan...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 16:00

Eygló komst ekki í úrslitin

Eygló Ósk Gústafsdóttir komst ekki í úrslit í 200 m baksundi á EM í Ungverjalandi. Hún var...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 10:26

Kári Steinn náði í brons á Norðurlandamóti

Kári Steinn Karlsson varð þriðji í 10 km hlaupi á Norðurlandameistarmótinu sem fór fram í ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 10:34

Ásdís náði fjórða sæti í Brasilíu

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir stendur í ströngu þessa dagana en um helgina keppti hún ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:48

Ísland í úrslit á nýju meti

Boðssundssveit Íslands komst í morgun áfram í úrslit í 4x100 m skriðsundi kvenna á Evrópum...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:19

Eygló Ósk í undanúrslit

Eygló Ósk Gústafsdóttir komst örugglega í undanúrslit í 200 m baksundi á EM í sundi sem hó...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:05

Jakob Jóhann og Árni Már náðu ekki sínu besta

Undanrásum í 100 m bringusundi er nú lokið á Evrópumeistaramótinu í sundi sem nú fer fram ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 08:00

Fleiri eiga erindi til Lundúna

Alls fara tólf íslenskir sundmenn á EM í 50 m laug sem hefst í Debrecen í Ungverjalandi í ...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 13:20

Jacky Pellerin ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í sundi

Sundsamband Íslands hefur gengið frá ráðningu á Jacky Pellerin sem landsliðsþjálfara Íslan...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 13:00

Ásdís, Ásgeir, Eygló, Ragna og Þorbjörg fengu öll flottan styrk

Tólf framúrskarandi íþróttamenn fengu í gær úthlutað afreksstyrk úr Samfélagssjóði Landsba...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 10:00

Ragna: Í besta formi lífs míns

Ragna Ingólfsdóttir stefnir á að sýna sitt rétta andlit á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sum...  

Meira
Sport 17. maí. 2012 20:00

Geta unnið Usain Bolt ilm með góðum árangri á Mótaröð FRÍ

Mótaröð FRÍ hefst á laugardaginn með keppni á Vormóti HSK á Selfossvelli en Mótaröð FRÍ er...  

Meira
Sport 14. maí. 2012 11:15

Ísland vann til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu

Íslenska landsliðið í boccia vann til bronsverðlauna í flokki 1 án rennu á Norðurlandamóti...  

Meira
Sport 13. maí. 2012 09:00

Mikið áhorf á bardaga Mayweather og Cotto

Floyd Mayweather og Miguel Cotto mokuðu inn peningum á bardaga sínum um daginn. Alls keypt...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 13:11

Auðunn nældi í silfur og setti heimsmet

Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson vann í dag silfurverðlaun í réttstöðulyftu á Evrópumó...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 12:59

Norðurlandamótið í boccia hafið

Norðurlandamót fatlaðra í boccia var sett í Laugardalshöll í morgun. Sveinn Áki Lúðvíksson...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 23:45

Hundur Tebow heitir núna Bronx

Frægðarstjarna Tim Tebow í Bandaríkjunum skín enn mjög skært og hann er afar vinsælt umfjö...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 17:15

Stóðu sig betur en þær dönsku og norsku - 24. sæti á EM í fimleikum

Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum hefur lokið keppni á Evrópumeistaramótinu í áhaldafi...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 23:00

Breska hnefaleikasambandið með hótanir vegna bardaga Haye og Chisora

Breska hnefaleikasambandið er brjálað yfir því að þeir David Haye og Dereck Chisora ætli a...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 15:00

Enginn bardagi hjá Khan | Peterson féll á lyfjaprófi

Það verður ekkert af því að Amir Khan og Lamont Peterson mætist að nýju í hringnum þann 19...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 14:30

Klitschko: Ótrúlegt að þessi bardagi fái að fara fram í Bretlandi

Hnefaleikakappinn Wladimir Klitschko er ekki mjög spenntur fyrir komandi bardaga á milli D...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 12:43

Þormóður fer á ÓL í London

Það var staðfest í dag að júdókappinn Þormóður Árni Jónsson mun taka þátt á Ólympíuleikunu...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 10:45

Usain Bolt náði besta tíma ársins | 9,82 sek.

Heims – og ólympíumethafinn í 100 metra hlaupi karla, Usain Bolt frá Jamaíku, virðis...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 06:30

Biðin loks á enda

Bestu boccia-spilarar landsins verða á meðal þátttakenda á Norðurlandamótinu sem fer fram ...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 10:30

Helgi Jónas og Guðríður í Boltanum á X-inu 977

Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Grindavíkur í körfuknattleik karla ve...  

Meira
Sport 08. maí. 2012 22:45

Michael Phelps hættir eftir Ólympíuleikana í London

Bandaríski sundmaðurinn Michael Phelps hefur gefið það út að hann ætli að hætta eftir Ólym...  

Meira
Sport 08. maí. 2012 12:15

Haye og Chisora ætla að slást á Upton Park

Það gleymist seint er hnefaleikaköppunum Dereck Chisora og David Haye laust saman á blaðam...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 17:03

Einar Daði bætti sinn besta árangur á Ítalíu

Einar Daði Lárusson úr ÍR náði þriðja sæti á alþjóðlegu tugþrautarmóti á Ítalíu sem lauk n...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Stórstjörnurnar ekki í vandræðum í Melbourne | Annarri umferð lokið