Innlent

Stórkanónur á kvennaráðstefnu á Bifröst

Judith Resnik var útnefnd fremsti fræðimaðurinn á sviði lögfræði árið 2008 af bandarísku lögmannasamtökunum.
Judith Resnik var útnefnd fremsti fræðimaðurinn á sviði lögfræði árið 2008 af bandarísku lögmannasamtökunum.

Tvær "stórkanónur" munu tala tíl íslenskra kvenna á ráðstefnunni Tenglsanet IV - Völd til kvenna sem haldin verður á Bifröst undir stjórn dr. Herdísar Þorgeirsdóttur prófessors 29. og 30. maí nk.

„Maud de Boer Buquicchio annar framkvæmdastjóri Evrópuráðsins mun ræða hlutskipti kvenna en hinn aðal fyrirlesarinn Judith Resnik prófessor við lagadeild Yale háskóla var útnefnd fremsti fræðimaður á sviði lögfræði 2008 af bandarísku lögmannasamtökunum," segir Herdís. „Aðeins fimm konur hafa hlotið þann heiður áður og er það talið til marks um að hún verði næst inn í Hæstarétt Bandaríkjanna."

Þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnan er haldin en vorið 2006 var hún stærsta ráðstefna í íslensku viðskiptalífi. „Ráðstefnan er sótt af konum á mörgum sviðum þjóðfélagsins, þverfagleg og þverpólitísk. Þema tengslanetsins í ár er Konur & réttlæti og munu ýmsir spennandi fyrirlesarar nálgast það efni út frá ólíkum sjónarhornum."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×