Tónlist

Stóns blása til stórtónleika

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Stóns ásamt vinum og samstarfsmönnum.
Stóns ásamt vinum og samstarfsmönnum.
Heiðurssveitin Stóns blæs til stórtónleika bæði sunnan og norðan heiða í október. Sveitin kemur fram í Háskólabíói laugardaginn 4. október og í Hofi á Akureyri föstudaginn 10. október.

Stóns var stofnuð á síðasta áratug með það fyrir augum að gera tónlist risarokkaranna í Rolling Stones hátt undir höfði, en hefur legið í dvala undanfarið.

Sveitin hlaut athygli fyrir færni og líflega sviðsframkomu en það er trommuleikarinn Björn Stefánsson, kenndur við Mínus, sem fer fyrir sveitinni með hljóðnema í hönd.

Í tilkynningu segir að tónleikar Stóns séu annað og meira en hefðbundnir heiðurstónleikar og haft hafi verið á orði að upplifunin sé líkt því að ferðast aftur í tímann.

Miðaverð er 5.990 krónur og hefst miðasala stundvíslega á hádegi fimmtudaginn 1. maí á Miða.is.

Stóns skipa:

Björn Stefánsson (Mínus) – söngur

Bjarni Magnús Sigurðarsson (Mínus) – gítar

Birgir Ísleifur Gunnarsson (Motion Boys) – píanó

Karl Daði Lúðvíksson (Lights on the Highway) – bassi

Frosti Runólfsson (Legend) – trommur

Að auki koma að tónleikunum fjöldi þekktra listamanna, tónlistarfólk sem sameinast í brenndandi áhuga á Rolling Stones, efni þeirra og sögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×