Körfubolti

Stólarnir sópuðu Þór í frí

Stólarnir voru í stuði í kvöld.
Stólarnir voru í stuði í kvöld. vísir/andri
Tindastóll er kominn í undanúrslit eftir öruggan sigur, 88-76, á Þór í kvöld.

Stólarnir sópuðu þar með Þór í frí. Þeir unnu rimmuna, 3-0, og eru til alls líklegir í framhaldinu.

Jafnt var á með liðunum framan af leik en í síðari hálfleik tóku heimamenn völdin í Síkinu.

Þeir hreinlega lokuðu vörninniog keyrðu svo yfir gestina úr Þorlákshöfn.

Tindastóll-Þór Þ. 88-76 (18-22, 23-17, 29-16, 18-21)

Tindastóll: Myron Dempsey 26/10 fráköst, Darrel Keith Lewis 15/7 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 12/5 stoðsendingar, Svavar Atli Birgisson 11/7 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 7/7 fráköst, Viðar Ágústsson 7, Helgi Freyr Margeirsson 5, Hannes Ingi Másson 3, Pétur Rúnar Birgisson 2/5 fráköst/8 stoðsendingar, Darrell Flake 0, Sigurður Páll Stefánsson 0, Finnbogi Bjarnason 0.

Þór Þ.: Darrin Govens 24/7 fráköst/7 stoðsendingar, Grétar Ingi Erlendsson 20, Tómas Heiðar Tómasson 10, Þorsteinn Már Ragnarsson 7/5 fráköst, Nemanja Sovic 7, Emil Karel Einarsson 5, Baldur Þór Ragnarsson 3/5 stoðsendingar, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 0, Oddur Ólafsson 0/4 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 0, Davíð Arnar Ágústsson 0.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×