Innlent

Stofna minningarverðlaun í nafni Arthúrs Morthens

Atli Ísleifsson skrifar
Arthúr Morthens lést í liðnum mánuði.
Arthúr Morthens lést í liðnum mánuði. Mynd/Reykjavíkurborg
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að stofna til minningarverðlauna í nafni Arthúrs Morthens sem lést í liðnum mánuði.

Þetta var ákveðið á fundi ráðsins í gær.

Í tilkynningu frá borginni segir að Arthúr hafi unnið um áratuga skeið sem sérfræðingur á sviði sérkennslu í grunnskólum Reykjavíkur og verið brautryðjandi við að innleiða þar stefnu um skóla án aðgreiningar.

„Hans verður minnst sem afburða skólamanns sem vann ötullega að velferð barna og framþróun í skólamálum.

Minningarverðlaunin verða veitt árlega, næstu fimm árin, einum grunnskóla í borginni, sem viðurkenningu fyrir störf í anda stefnunnar um skóla án aðgreiningar,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×