Körfubolti

Stóðu í röð eftir fríu húðflúri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þeir eru ófáir með svona húðflúr í Sacramento í dag.
Þeir eru ófáir með svona húðflúr í Sacramento í dag. mynd/twitter
Stuðningsmenn NBA-liðsins Sacramento Kings hata ekki fá eitthvað frítt og stóðu í röðum út um allan bæ til þess að fá frítt húðflúr.

Kings er að breyta öllu hjá félaginu. Nýtt merki og nýir búningar í nýrri höll. Til þess að búa til stemningu buðu þeir stuðningsmönnum upp á frí húðflúr af nýju merki félagsins.

Hægt var að fara á fimm staði í borginni á ákveðnum tíma og áhuginn var miklu meiri en búist var við. Það var einfaldlega röð á hverjum stað.

Kings á greinilega grjótharða stuðningsmenn eins og sjá mér hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×