Bíó og sjónvarp

Stjörnurnar tjá sig um sína verstu kossa á hvíta tjaldinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kossar í Hollywood-myndum eru óteljandi en sumir hafa fengið sérstakan stað í hjörtum kvikmyndaáhugamanna og gert hefur verið stólpagrín að mörgum þeirra í hinum ýmsu grínþáttum.

Enn önnur kossaatriði hafa verið margverðlaunuð á hinum ýmsu verðlaunaathöfnum. En hvað finnst stjörnunum sjálfum um kossana? Lífið á Vísi fór yfir nokkra kvikmyndakossa og hvað stjörnurnar segja um gerð þeirra.





1. Spider-Man

Gert var mikið grín að öfugum kossi Tobey Maguire og Kirsten Dunst í Spider-Man, til dæmis í Saturday Night Live og The O.C. En gerð atriðsins var ekki eins rómantísk og atriðið sjálft var í bíómyndinni.

„Ég hékk á hvolfi, það var orðið áliðið, það var rigning og allan tímann var regnvatn að renna uppí nefið á mér. Og Kirsten stöðvaði súrefnisflæði til mín þegar hún setti grímuna aftur á mig,“ sagði Tobey Maguire í viðtali við Parade árið 2007.





2. Interview with the Vampire

Kirsten Dunst var aðeins táningur þegar hún lék í kvikmyndinni og þurfti að kyssa hjartaknúsarann Brad Pitt. Henni fannst það ekkert spes.

„Allir sögðu við mig: Þú ert svo heppin að kyssa Brad Pitt. En mér fannst það viðbjóðslegt,“ sagði hún í viðtali við tímaritið Bullett um kossinn.





3. Harry Potter and the Deathly Hallows Part 2

Harry Potter-aðdáendur höfðu unun af því að fylgjast með ástinni á milli Hermione Granger og Ron Weasley blómstra á hvíta tjaldinu. 

Emma Watson vildi hins vegar ljúka kossaatriðinu af því henni fannst það óþægilegt sem endaði með því að hún réðst á Rupert Grint með vörum sínum eins og hún sagði frá í viðtali við MTV News.





4. Water for Elephants

Leikarinn Robert Pattinson kyssir leikkonuna Reese Witherspoon í myndinni en það var ekkert sérstaklega rómantískt á setti því Robert var með heiftarlegt kvef.

„Það var ekki fallegt. Það var ekki þægilegt,“ sagði Reese í viðtali við MTV News.





5. The Hunger Games: Catching Fire

Leikaranum Josh Hutcherson fannst ekkert gaman að kyssa Jennifer Lawrence í myndinni því hann segir að hún slefi of mikið þegar hún kyssir. Þá vitum við það!






6. Ástralía

Nicole Kidman og Hugh Jackman áttu að vera yfir sig æst í hvort annað í myndinni en Hugh segir að það hafi tekið smá tíma að fanga þessa ástríðu á filmu.

„Það er aldrei sérstaklega auðvelt að fara í sleik fyrir framan sjötíu manns. Það er ekki eitthvað sem kveikir í mér,“ sagði hann í viðtali við Match.com.





7. Wanted


James McAvoy var ekki hrifinn af því að kyssa kynbombuna Angelinu Jolie í myndinni.

„Ég get sagt ykkur hvernig það var að kyssa hana á setti: vandræðalegt, sveitt og ekki mjög þægilegt,“ sagði hann í viðtali við InTouch.





8. The Beach

Virginie Leydoyen lék ástkonu Leonardo DiCaprio í myndinni en myndi ekki vilja kyssa hann í alvörunni.

„Mér finnst Leonardo vera mjög fínn gaur en ég myndi ekki vilja vera elskhugi hans. Það var engin raunveruleg ástríða. Engar tilfinningar í ástarsenunum okkar. Ég gat bara hugsað um að drukkna ekki í ástarsenunum okkar í sjónum. Ég man ekki einu sinni eftir kossinum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×