Innlent

Stjórnarformaður Strætó: Vinnubrögð Reynis „ekki í boði“ hjá opinberu félagi

Bjarki Ármannsson skrifar
Bryndís Haraldsdóttir segir að traust hafi ekki lengur ríkt milli stjórnar og fráfarandi framkvæmdastjóra.
Bryndís Haraldsdóttir segir að traust hafi ekki lengur ríkt milli stjórnar og fráfarandi framkvæmdastjóra. Vísir
Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarformaður Strætó, segir að viðskipti á borð við þau sem stunduð voru við fyrirtækið Gagnalausnir ehf. , sem er í eigu bróður fráfarandi framkvæmdastóra Strætó, séu „ekki í boði“ hjá opinberu félagi.

Þetta kom fram í viðtali við Bryndísi í Kastljósi á RÚV. Reynir Jónsson hætti sem framkvæmdastjóri félagsins í gær en DV greindi frá því í dag að Strætó hefði greitt Gagnalausnum tuttugu milljónir fyrir fjögur verkefni á síðastliðnum fimm árum. Ekkert verkefnanna var boðið út.

„Mér var ekki kunnugt um þetta fyrir en fyrirspurn kemur frá DV,“ sagði Bryndís. „Það er auðvitað þannig að árið 2014 er ekkert í boði hjá fyrirtæki sem er í eigu almennings að versla við einhvern sem er þér nákominn án þess að það fari að minnsta kosti í útboð. Enginn í stjórninni vissi af þessu.“

Hún segir jafnframt að engin skjöl séu til um kaup Reynis á tíu milljón króna jeppa til einkanota en greint var frá því að stjórnin var ekki upplýst um þau kaup á sínum tíma. Þessi tvö mál séu þess valdandi að traust hafi ekki lengur ríkt milli stjórnarinnar og Reynis.

„Það kann að vera að við hefðum átt að vita um þetta fyrr,“ sagði Bryndís, spurð hvort það væri ekki „áfellisdómur“ yfir stjórninni að hún hefði ekki vitað um bílakaupin. „Við verðum auðvitað bara að treysta þeim sem starfa fyrir okkur og við treystum því fólki.

Það má auðvitað ekki gleyma því í öllu þessu að Reynir er búinn að starfa hjá okkur lengi og vinna gott starf. Ég held að þetta hafi verið mistök hjá Reyni.“


Tengdar fréttir

Eyðilagði jeppann í laxveiði

Framkvæmdastjóri Strætó ók jeppa sem hann hafði til umráða út í Norðurá í sumar og eyðilagði í honum vélina. Hann hefur skilað tíu milljóna króna bílnum sem hann fékk í hans stað.

Reynir hættur hjá Strætó

Framkvæmdastjóri Strætó lætur af störfum eftir að hafa verið látinn selja jeppann.

Telur Strætó hafa átt að auglýsa stöðuna

„Mér finnst alltaf skrýtið þegar stöður eru ekki auglýstar hvort sem þær eru tímabundnar eða ekki,“ segir Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi.

Sveinbjörg Birna vill að Reynir verði rekinn

Segir Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra Strætó BS, hafa farið út fyrir valdsvið sitt og því sé honum ekki lengur stætt á að gegna stöðu sinni áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×