Lífið

Stjórnandi Beauty tips segir álagið gríðarlegt

Guðrún Ansnes skrifar
Áslaug segir skoðanir koma úr öllum áttum og úr
Áslaug segir skoðanir koma úr öllum áttum og úr
Óhætt er að segja að bylting hafi átt sér stað, þar sem vel gröfnum leyndarmálum var ýtt upp á yfirborðið og konurnar afsala sér skömminni sem hefur fylgt kynferðisofbeldi. Hin tvítuga Áslaug María Agnarsdóttir er forsprakki hópsins Beauty tips sem er byrjunarreitur byltingarinnar.

Áslaug segir að upphaf byltingarinnar megi ef til vill rekja til færslu sem sett var inn á síðuna þar sem lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson var tekinn fyrir og reynslusögur skrifaðar i athugasemdakerfið.

„Ég tók þá færslu út, þar sem þetta var orðinn algjör dýragarður. Ekki til þess að þagga neitt niður, síður en svo, en ég áleit sem svo að best væri að taka þetta út í ljósi aðstæðna,“ segir Áslaug og því greinilegt að þöfin fyrir umræðuna var til staðar. Við að færslan hafi verið tekin út varð allt vitlaust og sögurnar spruttu fram hver á fætur annarri.

„Ég get með engu móti sagt hve margar konur hafa stigið fram með sínar sögur, en í hvert einasta skipti sem ég fer inná er komin ný sorgarsaga. Að minnsta kosti hundrað,“ útskýrir Áslaug er hún er innt eftir tölum og bætir við að hún hafi gefist upp á að fylgjast grannt með flæðinu í enda dags á föstudag.

„Þetta fór af stað á föstudaginn,“ segir Áslaug, sem viðurkennir að hafa einfaldlega lokað sjálf á þetta um helgina sökum álags. „Sjálf upplifi ég að ég veit ekki alveg hvernig mér á að líða með þetta allt saman,“ segir Áslaug, en hún hefur þurft að loka fyrir skilaboð á sinni persónulegu fésbókarsíðu vegna áreitis.

„Ég trúi þessu eiginlega ekki, en ég er einhvern veginn bæði stressuð og gríðarlega stolt á sama tíma,“ segir Áslaug sem átti ekki von á þessum sterku viðbrögðum. 

Áslaug er í fullu starfi á leikskóla á Bifröst og hefur þurft að einsetja sér reglur varðandi Beauty tips hópinn svo hún einfaldlega ofgeri sér ekki, slíkur er krafturinn í konum á Íslandi í dag.


Tengdar fréttir

Hundruð kvenna segja frá ofbeldi

Íslenskar konur deila inni á Facebook-hópnum Beauty Tips reynslu sinni af kynferðisofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. "Bylting“ segir ein þeirra og deilir reynslu sinni og vonast eftir að byltingin muni verða til þess að útrýma skömminni.

Segir kynferðisofbeldi af hálfu fyrrum kærasta afleiðingu klámvæðingarinnar

Lilja Karen er ein þeirra sem sagt hefur frá kynferðisofbeldi inn á Facebook-hópnum Beauty Tips. Hún segir fyrrverandi kærasta hafa beitt sig kynferðislegu og andlegu ofbeldi þegar hún var 14 ára gömul og brotin hafi verið afleiðing klámvæðingarinnar þar sem hann hafi verið heltekinn af klámi og sótt hugmyndir sínar um kynlíf þaðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×