Golf

Stenson kylfingur ársins í Evrópu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stenson með Claret Jug eftir að hafa unnið Opna breska.
Stenson með Claret Jug eftir að hafa unnið Opna breska. vísir/getty
Svíinn Henrik Stenson var í dag útnefndur kylfingur ársins í Evrópu en þetta er annað árið í röð sem hann hlýtur þessa útnefningu.

Stenson átti frábært ár í golfinu en hann vann Opna breska mótið á mjög eftirminnilegan hátt. Hann var þá í mikilli rimmu við Phil Mickelson.

Þrem vikum áður hafði hann unnið BMW-mótið sterka.

Þó svo Stenson hefði verið að glíma við hnémeiðsli yfir árið þá var hann ellefu sinnum á meðal tíu efstu í þeim mótum sem hann tók þátt í.

Hann fékk líka silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Ríó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×