Lífið

Steingeit: Ekki stjórnast af áliti annarra

Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.
Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.
Elsku karaktermikla Steingeit. Það þarf að vera myrkur til þess að stjörnurnar sjáist og þú ert búin að hafa regnbogann sem þitt tilfinningalitróf. Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin. Svo þegar hún verður á vegi þínum, gríptu hana! Sönn ást þarf enga leiki.

Þú ert kærleiksrík og gefandi og mundu að allir heillast af þér eins og þú ert. Þú þarft að takast á við stóra áskorun til að fá það fram sem þú þarft. Þér þarf að vera skítsama um hvað öðrum finnst og ekki gráta smá rigningargusur. Hoppaðu frekar í pollunum!

Það er eitthvað verið að draga þig á asnaeyrunum og mundu að það illa hefur stundum ásjónu engils.

Þú átt eftir að græða á óheppni annarrar manneskju en það er ekki þér að kenna því að fröken Karma er bara að gefa þér gjöf.

Elsku hjartans skemmtilega Steingeit, það er að koma stórkostlegt happ inn í líf þitt en það sveima áhyggjur í kringum þig áður en það gerist en mundu að það er bara stormurinn á undan gleðinni.

Mottó: Þar sem viljinn er fyrir hendi er vegurinn það líka.



Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesú.


Tengdar fréttir

Vogin: Allt á sér ástæðu

Elsku kjarkmikla Vog. Það er ekki hægt að segja að allt hafi farið nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér.

Sporðdreki: Ekkert getur stoppað þig

Elsku Sporðdreki. Það má líkja þér við fuglinn Fönix. Það er alveg sama hvaða erfiðleikum þú lendir í, þú finnur þér alltaf leið út úr þeim.

Hrútur: Láttu heyrast í þér

Elsku aflmikli Hrúturinn minn. Lífið er í raun auðvelt en það erum við sjálf sem flækjum það.

Krabbinn: Hafðu trú á sjálfum þér

Elsku hressi Krabbinn minn. Það er svo mikill kraftur í kortinu þínu að þú verður að nýta þér hann. Það er eins og þú sért að ganga stigann að takmarki þínu og sjáir skýrt hvað þú vilt.

Nautið: Segðu já við hinu óvænta

Elsku hjartans Nautið mitt. Ekki deyja áður en þú lifir. Þetta ættu að vera einkunnarorðin þín því þú gætir allt eins farið hálfdautt í gegnum lífið ef þú sprengir ekki þægindarammann utan af þér.

Meyjan: Taktu áhættu

Elsku góðhjartaða Meyja. Haustið er þinn tími. Þú skalt nýta þér það að þú ert farin að sjá hvernig þú kemur þér út úr þeim erfiðleikum sem þú hefur áhyggjur af. Þú ert að taka áhættu sem reddast á síðustu stundu.

Vatnsberi: Hafðu gaman af því sem þú gerir

Elsku fallegi Vatnsberi. Mundu að þeir sem haga sér of vel skrifa yfirleitt ekki mannkynssöguna! Og árangur þinn felst ekki í því að hafa allt fullkomið heldur því að hafa gaman af því sem þú gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×