Starfsmönnum fækkað um 400 Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. september 2010 18:45 Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að mikill árangur hafi náðst í að skera niður rekstrarkostnað Landspítalans. Mynd/ Anton.
Stöðugildum starfsmanna á Landspítala fækkaði um 300 á fyrstu átta mánuðum ársins, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í samtali við Vísi. Hann áætlar að starfsmönnum hafi fækkað um 400 á þessum tíma en launakostnaður hefur lækkað um 973 milljónir króna. Björn segir að auk þess sem starfsmönnum hafi fækkað skýrist lægri launakostnaður af minni yfirvinnu og einhverjir starfsmenn hafi tekið á sig launalækkanir. Björn segir að langflestir starfsmenn sem látið hafi af störfum á spítalanum hafi hætt vegna eðlilegrar starfsmannaveltu. Til dæmis hafi fólk farið í nám. Hann áætlar að færri en 50 manns hafi verið sagt upp störfum í hagræðingarskyni. Langlegudeild hafi verið lokað á Kleppi og þar hafi 27 misst vinnuna. Þá hafi fólk misst vinnuna vegna skipulagsbreytinga sem gerðar voru á eldhúsi Landspítalans. Starfsfólk meðvitaðara um kostnað Björn segir að mikill árangur hafi náðst í lækkun á rekstrarkostnaði spítalans að undanförnu. Það sé ekki síst vegna þess að starfsmenn fari betur með alls kyns hluti sem notaðir eru í rekstri spítalans. Kostnaður vegna pappírsnotkunar hafi dregist saman um 3,5 milljónir króna, kostnaður vegna blekhylkja hafi dregist saman um 7 milljónir, kostnaður vegna einnota eldhúsáhalda hafi dregist saman um 3 milljónir. Þá hafi kostnaður vegna rafmagnsnotkunar dregist saman um 7,5 milljónir og kostnaður vegna hitaveitu hefur dregist saman um 6 milljónir. „Allt þetta eru svona smáhlutir, en þetta er hluti af þeirri meðvitund að það verði að fara vel með hlutina," segir Björn. Hann segir að unnið hafi verið markvisst að því að auka kostnaðarvitund fólks. Til dæmis séu mest notuðu hlutirnir á sjúkradeildunum verðmerktir þannig að starfsfólk viti hversu miklum peningum það er að eyða. Þetta eigi við, jafnvel þótt um sé að ræða ódýra hluti eins og bómullarhnoðra.
Tengdar fréttir Launakostnaður lækkaður um milljarð Launakostnaður á Landspítala hefur dregist saman um 973 milljónir króna á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í mánudagspistli sínum. 6. september 2010 16:58 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Boðar þungar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Fleiri fréttir Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Sjá meira
Launakostnaður lækkaður um milljarð Launakostnaður á Landspítala hefur dregist saman um 973 milljónir króna á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í mánudagspistli sínum. 6. september 2010 16:58