Fréttamaður

Margrét Helga Erlingsdóttir

Margrét Helga er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Lönduðu eld­snemma í morgun þrátt fyrir eld­gosið

Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé.

Brýnt að undið verði ofan af kaupunum

Þingmaður Viðreisnar segir brýnt að undið verði ofan af kaupum Landsbanks á TM tryggingum. Ekki gangi upp að banki sem er nánast að fullu í eigu ríkisins taki sér það vald, án þess að spyrja kóng eða prest, að að kaupa tryggingafélaga og færa þannig út kvíarnar inn á nýjan markað. Þingmaður Samfylkingar segir fjármálaráðherra hafa brugðist skyldum sínum.

Ís­lensk ung­menni ó­hamingju­samari en eldri kyn­slóðir

Ísland vermir þriðja sætið á lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims. Þetta sýnir ný alþjóðleg hamingjuskýrsla. Talsverður munur er á hamingju ungmenna og þeirra sem eldri eru en íslensku ungmennin eru þó hamingjusamari en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum sem jafnan eru þau lönd sem Íslendingar bera sig saman við.

Fimm­tíu milljónir ár­lega í rekstur bílastæða við HÍ

Gjaldtaka á bílastæðum við Háskóla Íslands hefst í haust. Rektor háskólans segir tilganginn að draga úr bílaumferð um svæðið og auka kostnaðarvitund starfsfólks og nemenda um bílastæðin en Háskólinn hefur borgað fimmtíu milljónir árlega fyrir rekstur stæðanna.

Dýr­tíðin skerði sam­keppnis­hæfni á­fanga­staðarins Ís­lands

Stjórnvöld verða að taka alvarlega þær blikur sem á lofti eru í ferðaþjónustu. Þetta segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar sem varar við þeim efnahagslegu afleiðingum sem samdráttur í greininni hefði í för með sér fyrir þjóðarbúið.

Bjart­sýn á að þeim takist að koma öllum dvalarleyfishöfum í skjól

Tvær íslenskar konur, sem eru úti í Kaíró í sjálfboðaliðastarfi, eru bjartsýnar á að þeim takist á næstu dögum að bjarga þeim sem hafa dvalarleyfi á Íslandi, og enn eru fastir á Gasa, út af svæðinu. Þær hafi í dag komið öllum 49 dvalarleyfishöfunum á svokallaðan landamæralista.

Mikil­vægt fyrir sál­rænan bata að fá góðar mót­tökur

Rauði krossinn býðst til þess að veita öllum sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum sem var bjargað út úr Gasasvæðinu á dögunum áfallahjálp. Sérfræðingur hjá samtökunum segir að geri megi ráð fyrir að flestir þeirra beri mörg áföll á bakinu og því sé mikilvægt fyrir sálrænan bata þeirra að Íslendingar taki vel á móti þeim.

Yndis­leg stund sem allir sem eigi fjöl­skyldur hljóti að skilja

Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Baráttufeðgin segja allt fjölskyldufólk á Íslandi hljóta að sjá fegurðina í sameiningu fjölskyldna eftir margra ára aðskilnað.

Sjá meira