Innlent

Starfsemi meðferðarheimila ungmenna skert eða liggur niðri

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hluti starfsemi Stuðla liggur niðri.
Hluti starfsemi Stuðla liggur niðri. vísir/pjetur
Unglingameðferðarheimilið Lækjarbakki er lokað á meðan verkfall SFR og sjúkraliða stendur yfir. Sömu sögu er að segja um hluta Stuðla.

Á vegum Barnaverndarstofu starfa fjögur meðferðarheimili. Háholt og Laugaland eru rekin af einkaaðilum og eru þau opin. Neyðarþjónustan á Stuðlum hlaut undanþágu frá verkfallinu en sömu sögu er ekki að segja af greiningar- og meðferðarhluta Stuðla og Lækjarbakka.

Bragi Guðbrandsson
„Á Stuðlum eru sex börn að jafnaði og það voru fjögur börn á Lækjarbakka,“ segir Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu í samtali við Vísi. „Þau hafa öll verið send heim á meðan verkfallið er og munu að óbreyttu snúa aftur á miðvikudag. Þetta hefur áhrif á tíu til tólf pláss.“

Börnin sem dveljast á Lækjarbakka hafa lokið meðferð á Stuðlum eða BUGL og eru í framhaldsmeðferð. Enginn fer beint inn á Lækjarbakka. Meðferðin getur tekið allt að hálfu ári en í framhaldi getur við eftirmeðferð í allt að þrjá mánuði. Börnin eru á aldrinum fjórtán til átján ára.

„Ef það verður áframhald á verkfallinu þá verður þetta allt sífellt erfiðara. Svona lokum hefur mjög neikvæð áhrif á meðferðardvöl barna og gífurleg hætta er á að meðferðarávinningur tapist niður,“ segir Bragi. Aðspurður um hvort að sótt hafi verið um verkfallsundanþágu segir Bragi að svo hafi ekki verið gert. „Þessi starfsemi flokkast ekki sem neyðarþjónusta og myndi aldrei fá undanþáguna.“

Líkt og áður segir er neyðarmóttaka Stuðla opin og svokölluð MST meðferð á vettvangi fjölskyldu og heimilis er enn í gangi en um hana sér starfsfólk í BHM.

Uppfært 19. október klukkan 15.37 þar sem ranglega var talað um að Háolt væri lokað. Þar átti að standa Lækjarbakki.


Tengdar fréttir

Líkur á að verkföll haldi áfram eftir helgi

Búist er við að fulltrúar ríkis ræði við fulltrúa SFR, SLFÍ og LL um helgina. ­Formaður SFR segir langar viðræður fram undan og óvíst um málalyktir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×