Erlent

Stærsti samruni lyfjafyrirtækja í sögunni

Sæunn Gísladóttir skrifar
Pfizer hefur keypt Allergan fyrir 21 þúsund milljarða króna.
Pfizer hefur keypt Allergan fyrir 21 þúsund milljarða króna. Fréttablaðið/Getty
Í gær tilkynnti bandaríski lyfjaframleiðandinn Pfizer að samningar hefðu náðst um yfirtöku fyrirtækisins á Allergan. Samningurinn er metinn á 160 milljarða Bandaríkjadala, 21.000 milljarða íslenskra króna. Því er um að ræða stærsta lyfjafyrirtækjasamruna sögunnar.

Um er að ræða sameiningu Pfizer og frumlyfjahluta Allergan og hefur samkomulag þetta ekki áhrif á fyrirhuguð kaup Teva á samheitalyfjahluta fyrirtækisins sem tilkynnt var um í júlí á þessu ári. Samheitalyfjahluti fyrirtækisins starfar að mestu undir nafni Actavis víða um heim, þar á meðal á Íslandi, en hér á landi er fyrst og fremst starfsemi á sviði samheitalyfja.

Sérfræðingar telja að eftir samninginn muni Pfizer flytja höfuðstöðvar sínar til Dublin á Írlandi og þannig forðast háa fyrirtækjaskatta Bandaríkjanna.

Ian Read, forstjóri Pfizer, mun verða forstjóri og stjórnarformaður nýju samstæðunnar, að því er segir í frétt BBC um málið. Brent Saunders, forstjóri Allergan, mun verða framkvæmdastjóri rekstrarsviðs samstæðunnar.

Yfirtakan er ein af fjölmörgum þar sem bandarísk fyrirtæki kaupa evrópsk fyrirtæki og flytja höfuðstöðvar sínar til að forðast háa fyrirtækjaskatta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×