Stærsta skónetverslun landsins

Fréttablaðið Kynningar 23. janúar 2012 11:00
Marín Manda segir viðskiptavini Skor.is njóta ýmissa kjara.
Marín Manda segir viðskiptavini Skor.is njóta ýmissa kjara. mynd/gva
Skor.is er ein stærsta skóverslun landsins þar sem hægt er að kaupa skófatnað á alla fjölskylduna á einu augabragði, hvar og hvenær sem er. Marín Manda Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri skor.is ,veit allt um málið.

„Við erum með í kringum fjörutíu vönduð vörumerki í skóm og allt að 3.000 „stæla" og flotta fylgihluti sem taka breytingum yfir árið í takt við strauma og stefnur í tísku," útskýrir Marín Manda og segir fjölbreytt vöruúrval sótt í skóverslanir í eigu sömu aðila.

„Kaupfélagið, Steinar Waage, Ecco-búðirnar og Toppskórinn og auðvitað Skor.is."

Sérstaka athygli vekja þau fjölmörgu þekktu skómerki sem bjóðast á síðunni. „Já, hérna fæst raunverulega allt sem hugurinn girnist, allt frá Six Mix og Ecco upp í sportvörumerki á borð við Nike, Adidas og Puma. Við erum meira að segja með íslensk merki eins og Mörtu Johnson. Og þetta eru skór við öll tilefni hvort heldur til hversdagsnota, við hátíðleg tilefni, til íþróttaiðkunar eða annað," segir hún.

Og ekki skemmir fyrir sanngjarnt verð og alls kyns krassandi tilboð sem Marín Manda segir einn af mörgum kostum þess að halda úti vefverslun á borð við skor.is. „Yfirbyggingin er minni en í venjulegum verslunarrekstri og útlagður kostnaður lægri og fyrir vikið getum við boðið skóna á betra verði," segir hún en tekur fram að þetta fyrirkomulag komi þó á engan hátt niður á þjónustunni.

„Þvert á móti leggjum við okkur fram við að veita viðskiptavinum okkar persónulega þjónustu. Til marks um það svörum við e-mail á öllum tímum sólarhringsins. Enda annar plús við viðskipti á netinu sá að hægt er að gefa sér góðan tíma til að skoða úrvalið í ró og næði, eiginlega hvar og hvenær sem er, sem sparar manni líka tíma og fyrirhöfn," bendir Marín Manda á.

„Þetta auðveldar manni lífið!" Þegar vörukaupin eru frágengin á heimasíðunni ganga hlutirnir fljótt fyrir sig að hennar sögn. „Yfirleitt tekur aðeins á bilinu einn til tvo daga að fá skóna senda heim. Viðkomandi gefur upp farsímanúmer þegar hann gerir kaupin og pósturinn sendir textaskilaboð þegar sendingin fer af stað. Þannig að vörurnar berast með skjótum og öruggum hætti."

En hvernig snýr viðkomandi sér langi hann til að skila vörum?
„Heyrðu, það er nú sáraeinfalt. Hann kíkir þá bara í eina af verslunum okkar og fær annað hvort að skipta eða inneignarnótu. Við tökum vel á móti honum," svarar hún og brosir.

Þá segir Marín Manda meðlimi netklúbbs skor.is njóta sérstakra kjara. „Við dekrum alveg við þá, þeir fá reglulega póst með alls kyns spennandi tilboðum, stundum fría heimsendingu, gjafir og fleira, en skráning fer fram á heimasíðunni."

Fleiri fréttir - Kynningar

Kynningar 25. maí. 2012 09:00

Seiðandi undirfatnaður og lífleg náttföt

Boux Avenue er ný undirfataverslun á annarri hæð Kringlunnar. Merkið er breskt og er versl...  

Meira
Kynningar 25. maí. 2012 06:00

Hráefnið skiptir öllu máli

Pitsustaðurinn Eldofninn í Grímsbæ við Bústaðaveg er vel falið leyndarmál í miðju íbúðahve...  

Meira
Kynningar 24. maí. 2012 15:54

Bætt þjónusta í Glerborg

Glerborg hefur fengið nýjan liðsmann í þjónustudeild sína. Stefán Geir Stefánsson hefur ár...  

Meira
Kynningar 23. maí. 2012 14:00

Áralöng reynsla og traust þjónusta

Hjá fasteignasölunni Fjárfestingu er nóg að gera og hefur verið mikill uppgangur síðustu m...  

Meira
Kynningar 23. maí. 2012 14:00

Kröfur eru áskorun

Húsaskjól fasteignasala býður persónulega þjónustu og vönduð vinnubrögð. Ásdís Ósk Valsdót...  

Meira
Kynningar 23. maí. 2012 14:00

Stærsta fasteignasala Reykjavíkur

Einkunnarorð Fasteignasölunnar Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi. Mikil...  

Meira
Kynningar 23. maí. 2012 14:00

Húsdraumar lifna við í snjallsíma

Sunnudagsbíltúrinn er orðinn miklum mun líflegri með tilkomu fasteignaleitar Mikluborgar í...  

Meira
Kynningar 23. maí. 2012 14:00

Topp þjónusta hjá fasteignasölunni TORGI

Úrvals þjónusta við kaupendur og seljendur fasteigna er kjarninn í starfsemi fasteignasölu...  

Meira
Kynningar 11. maí. 2012 09:15

Flott leið til að minnka fituprósentu

EasyTone-skórnir frá Reebok hafa slegið í gegn hjá konum....  

Meira
Kynningar 11. maí. 2012 09:00

Syndsamlega góðir sumardrykkir í sólinni

Mikil sprenging varð í sölu kaldra sumardrykkja hjá Te og kaffi síðasta sumar. Í ár verða ...  

Meira
Kynningar 11. maí. 2012 09:00

Glamúr, glimmer og skærir litir

Bianco hefur opnað nýja og endurbætta verslun í Kringlunni. Þar er hægt að fá skó, skart o...  

Meira
Kynningar 24. apr. 2012 11:14

Sparað með hópferðum

Flugfélag Íslands býður upp á mjög hagstætt verð fyrir hópa. "Það getur jafnvel verið ódýr...  

Meira
Kynningar 20. apr. 2012 09:31

Gleraugu á viðráðanlegu verði

Í Gleraugnaversluninni Eyesland á fimmtu hæð í Glæsibæ er að finna mikið úrval af gleraugu...  

Meira
Kynningar 20. apr. 2012 17:01

Nú veit ég hvar ég kaupi næstu gjöf

Gjafavöruverslunin Minja býður uppá fallega hönnunarvöru sem kemur fólki í gott skap....  

Meira
Kynningar 13. apr. 2012 12:30

Verslun fyrir nútímakonur

I AM var opnuð í Kringlunni í gær en verslunin býður skartgripi og fylgihluti sem fullnægj...  

Meira
Kynningar 13. apr. 2012 14:46

Bridgestone er flagg- skipið hjá Betra gripi

Fyrirtækið Betra grip ehf. rekur heildverslun og hjólbarðaverkstæði að Lágmúla 9. Fyrirtæk...  

Meira
Kynningar 13. apr. 2012 14:46

Notuð sumardekk – góður kostur

Hjá Vöku er hægt að komast hjá miklum útgjöldum með kaupum á notuðum sumardekkjum. Bestu d...  

Meira
Kynningar 13. apr. 2012 14:46

Verkstæði með Michelin-vottun

Hjólbarðaverkstæði N1 tóku nýverið upp Michelin-gæðavottunarkerfi sem er sérhannað af Mich...  

Meira
Kynningar 13. apr. 2012 14:46

Fyrsta skrefið er hjá Dekkjasölunni

Dekkjasalan í Hafnarfirði er eina umboðssalan hérlendis með notuð dekk og felgur. Í gegnum...  

Meira
Kynningar 09. apr. 2012 18:07

Vertu heilbrigð og falleg - án aukaefna

Á hverjum degi notum við alls konar húðvörur til að hreinsa og mýkja húðina. Margar þeirra...  

Meira
Kynningar 30. mar. 2012 10:40

Sum leyndarmál Victoriu finnast aðeins í Fríhöfninni

"Victoria"s Secret er eitt vinsælasta undirfatamerki veraldar og því hefur langþráður drau...  

Meira
Kynningar 30. mar. 2012 10:40

Áhersla lögð á snið og lögun

Verslunin Evans í Kringlunni býður upp á stærðir frá 14 og upp í 32 eða frá 42 upp í 60 í ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Þorsteinn Pálsson
Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hrukku í kút þega...

Skoðun

Bankablús

Bankablús

Ólafur Þ. Stephensen
Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagnir og lokun úti...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Kynningar / Stærsta skónetverslun landsins