Stærsta safn Deutsch-traktora á Íslandi 5. júlí 2007 01:15 Elvar pantaði þennan Pontiac Chieftain, árgerð 1956, á eBay og borgaði 1,6 milljónir króna fyrir. Fréttablaðið/gva
Elvar Sigurgeirsson, vélaverktaki í Bolungarvík, hefur sankað að sér sautján Deutsch-dráttarvélum, tuttugu gömlum fólksbifreiðum og nokkrum vörubílum. Hann dreymir um að stofna tækjasafn í Bolungarvík og stendur fyrir fornbílasýningu í bænum um helgina. Elvar er ekki nema 33 ára gamall en hefur safnað á fimmta tug dráttarvéla, fólksbifreiða og vörubíla. „Það eru ekki nema þrjú ár síðan ég byrjaði að safna fólksbílunum,“ segir hann. „Ég hef haft áhuga á Deutsch-dráttarvélum í nokkurn tíma og safnað þeim héðan og þaðan um landið. Eitt sinn þegar ég var að flytja einn traktorinn var mér boðinn bíll sem ég gat ekki afþakkað og síðan hefur þetta undið upp á sig.“ Elvar er með níu manns í vinnu og þegar hægist um hjá fyrirtækinu á veturna nýtir hann krafta þeirra til að gera upp dráttarvélar og bíla. „Þeir eru hvort eð er í vinnunni þannig það er eins gott að nýta þá í það.“ Hann er að leggja lokahönd á fimmtu Deutsch-dráttarvélina sem hann gerir upp og telur ótvírætt að hann eigi stærsta safn slíkra dráttarvéla á landinu. Spurður hvers vegna hann hafi svona mikinn áhuga á þessum tilteknu dráttarvélum er svarið einfalt: „Afi átti alltaf Deutsch.“ Elvar býr svo vel að eiga 1.200 fermetra skemmu þar sem hann geymir flesta bílana og dráttarvélarnar. Í bílasafninu gætir ýmissa grasa. Innan um Benz, Saab og Willis-jeppa blasir til dæmis við Lada Samara, sem Elvar segir hafa ótvírætt söfnunargildi. „Eftir fimmtán ár eða svo sjást þessir bílar ekki lengur á götum hér á landi.“ Sumir bílanna eru afar illa farnir. Elvar segir það sinn veikleika að rekist hann á bíl með sérstöðu geti hann ekki hugsað sér að honum sé fleygt. Suma fær hann gefins en aðra kaupir hann og gerir sér vonir um að geta gert þá alla upp með tíð og tíma. „Varahlutina er flesta hægt að fá á eBay og ég smíða ansi margt sjálfur. Öðruvísi væri þetta ekki hægt.“ Djásnið í safninu segir Elvar vera Pontiac Chieftain, árgerð 1956. sem hann pantaði af eBay og notar í spássitúra á sunnudögum. „Ég borgaði 1,6 milljónir króna fyrir hann og sé ekki eftir því,“ segir hann. Þótt hann hafi gert upp nokkrar dráttarvélar og sé kominn vel áleiðis með Benz-bifreið hvarflar ekki að Elvari að selja nokkuð af bílunum. Hann viðurkennir að þetta sé dýrt áhugamál en kona hans setji sig þó ekki upp á móti því. „Á móti kemur að ég smakka ekki áfengi, þannig það er kannski alveg eins hægt að eyða peningunum í þetta í staðinn. Um daginn fékk ég tilboð í Benzinn og bar undir hana og hún sagði þvert nei.“ Um helgina ætlar Elvar að bóna bestu bílana og halda fornbílasýningu, sem hann vonar að sé aðeins vísirinn að því sem koma skal. „Draumurinn er að koma upp tækjasafni hér í Bolungarvík einhvern daginn. Það á eftir að taka sinn tíma en rætist vonandi einn góðan veðurdag.“
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Facebook lá niðri Erlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira