Fótbolti

Spiluðu óvart þjóðsöng Kasakstan í stað El Salvador

Skipuleggjendur leiks El Salvador og Argentínu hafa beðist afsökunar á því að hafa spilað vitlausan þjóðsöng fyrir leik.

Argentínski þjóðsöngurinn hljómaði rétt en þegar kom að El Salvador urðu margir hissa. Þjóðsöngurinn sem var spilaður var þjóðsöngur Kasakstan.

Leikmenn liðsins voru steinhissa. Þeir voru tilbúnir með hendi á hjartanu en voru fljótir að setja hana niður er þeir könnuðust lítt við lagið.

Áhorfendur bauluðu og voru eðlilega móðgaðir. Hvort sem það var þessu klúðri að kenna að þá fann lið El Salvador sig ekki í leiknum og tapaði 2-0.

Sjá má þetta klúður hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×