Körfubolti

Spilar í gamla skóla Curry en heldur mest upp á Allen Iverson

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Axel Guðmundsson.
Jón Axel Guðmundsson. Vísir/Getty
Jón Axel Guðmundsson hefur staðið sig mjög vel á sínu fyrsta tímabili með Davidson-háskólaliðinu og er einn af lykilmönnum liðsins sem er athygliverður árangur fyrir nýliða.

Graham Hooten, herbergisfélagi Jóns Axels á heimavistinni í Davidson, er ánægður með íslenska körfuboltastrákinn og hann skrifaði fróðlega grein á A10Talk síðuna sem fjallar um Atlantic 10 körfuboltadeildina.

Hann gerir sér von um að Jón Axel komist í úrvalslið ársins hjá nýliðum í Atlantic 10 deildinni sem væri mikill heiður fyrir íslenska bakvörðinn úr Grindavík. Jón Axel er að fá að spila yfir 30 mínútur í leik og hann er með 8,1 stig og 3,5 stoðsendingar að meðaltali.

Hooten skrifar um það að þjálfarinn Bob McKillop hafi verið sá eini sem var tilbúinn að veðja á Grindvíkinginn og að hann sjái ekki eftir því í dag. Miðað við spilatímann hjá Jóni Axel á fyrsta ári fer ekkert á milli mála að McKillop sér Jón Axel fyrir sér sem lykilmann öll fjögur árin.

Það koma einnig fram allskyns upplýsingar um Jón Axel í greininni þar á meðalt að „The Bachelor“ sér einn uppáhaldssjónvarpsþátturinn hans og að Allen Iverson sé uppáhalds NBA-leikmaðurinn hans. Þar kemur líka fram að hann haldi mikið upp á McDonalds og íslenska lakkrísinn.

Jón Axel heldur því meira upp á Allen Iverson en Stephen Curry sem hefur verið kosinn besti leikmaður NBA undanfarin tvö tímabil og lék með Davidson-háskólaliðinu á árum áður. Það er reyndar alls ekkert slæmt að halda upp á Iverson enda frábær leikmaður sem gat allt sitt inn á vellinum sem er ekki slæmur kostur hjá körfuboltamanni.

Það eina sem má finna að greininni er að þar kemur fram að Jón Axel er að monta sig af hraðakstri á milli Grindavíkur og Reykjavíkur. Hann segist vera fimmtán mínútur að keyra rúma fimmtíu kílómetra sem þýðir meðalhraða langt yfir leyfilegan ökuhraða.

Graham Hooten er mjög ánægður með herbergisfélagann sinn en fyrir þá sem vilja lesa alla greinina um Jón Axel þá er hlekkur á hana hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×