Körfubolti

Spike Lee til í að pakka fyrir Phil Jackson

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Spike mætir á flesta leiki þó ekkert gangi hjá Knicks.
Spike mætir á flesta leiki þó ekkert gangi hjá Knicks. vísir/getty
Það er allt að verða vitlaust í kringum NY Knicks eins og kristallaðist í nótt í hegðun Charles Oakley, fyrrum leikmanns félagsins.

Líkt og venjulega gengur hvorki né rekur hjá félaginu og skotin ganga í allar áttir. Nú er meðal annars verið að ræða um að félagið eigi að losa sig við Carmelo Anthony en það vill ofuraðdáandi félagsins, Spike Lee, ekki sjá gerast.

Sjá einnig: Fyrrum leikmaður Knicks handtekinn í MSG | Myndband

„Ég skal pakka ofan í tösku fyrir Phil,“ sagði Lee en hann vill frekar að forseti félagsins, Phil Jackson, láti sig hverfa. Spike vill halda Melo hjá félaginu.

„Ég trúi enn á Melo en Phil Jackson er að gera honum verulega erfitt fyrir.“

Sjá má lætin í MSG í nótt í fréttinni hér að ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×