Sparnaður sagður bitna á fátækum

Fréttablaðið Viðskipti erlent 30. ágúst 2010 04:45
David Cameron og George Osborne Forsætisráðherra Bretlands og fjármálaráðherra í stjórn hans.nordicphotos/AFP
David Cameron og George Osborne Forsætisráðherra Bretlands og fjármálaráðherra í stjórn hans.nordicphotos/AFP

Harkalegur sparnaður á fjárlögum í Bretlandi bitnar illa á fátækum, samkvæmt úttekt IFS, óháðrar þjóðhagsrannsóknastofnunar í Bretlandi. Þetta stangast á við yfirlýsingar bresku stjórnarinnar, sem segist einmitt hafa gætt þess vel að sparnaðurinn muni ekki bitna á fátæklingum.

Samkvæmt IFS valda sparnaðaraðgerðirnar því að þau tíu prósent breskra fjölskyldna, sem fátækastar eru, missa meira en fimm prósent af tekjum sínum. Til samanburðar missa þau tíu prósent fjölskyldna, sem auðugastar eru, einungis um eitt prósent tekna sinna, og er þá miðað við barnlausar fjölskyldur sem ekki þiggja lífeyrisgreiðslur.

George Osborne fjármálaráðherra hefur sagt sparnaðinn, sem ná eigi fram á neyðarfjárlögum ársins, muni koma harðar niður á þeim sem meiri tekjur hafa, en stofnunin segir úttekt sína sýna að því sé þveröfugt farið.

Nick Clegg, leiðtogi Frjálslynda flokksins og aðstoðarforsætisráðherra í stjórn Davids Camerons, leiðtoga Íhaldsflokksins, sakar IFS um hlutdrægni. Þar sé ekki tekið neitt tillit til þess, að stjórnin ætli að ráðast í miklar aðgerðir til að koma fólki af bótum og út á vinnumarkaðinn. Þar náist fram mikill sparnaður um leið og dregið sé úr fátækt.

Um þetta er fjallað í breskum fjölmiðlum, meðal annars á vefsíðum dagblaðsins Guardian og ríkisútvarpsins BBC.

Hagvöxtur í Bretlandi mældist 1,2 prósent á öðrum ársfjórðungi, sem er heldur meira en þau 1,1 prósent sem spáð var. Stjórnin þakkar þetta miklum vexti í byggingariðnaði.

Hagvöxtur hefur þá mælst í þrjá ársfjórðunga í röð, en þar á undan hafði mælst samdráttur í bresku efnahagslífi sex ársfjórðunga í röð. Þessi frétt virðist þó ekki hafa slegið á ótta Breta um að hagvöxturinn minnki á ný þegar sparnaðaraðgerðirnar fara að bitna á fólki og fyrirtækjum síðar á árinu.

Hagfræðingurinn Samuel Tombs segir hagvöxtinn byggðan á mjög veikum grunni, sem ólíklegt er að standi til lengdar.

„Bæði heimili og ríki juku útgjöld sín, heimilin um 0,7 prósent milli fjórðunga og ríkið um 0,3 prósent," hefur AP-fréttastofan eftir honum, „en báðir þessir geirar eru afar ólíklegir til að halda áfram þessum vaxtarhraða þegar þrengt verður að í fjármálunum á næstu fjórðungum."
gudsteinn@frettabladid.is


Fleiri fréttir - Viðskipti erlent

Viðskipti erlent 12. feb. 2012 23:09

Grikkir samþykkja niðurskurð í skugga óeirða

Gríska þingið samþykkti í kvöld umdeildar niðurskurðaraðgerðir sem áformaðar hafa verið um...  

Meira
Viðskipti erlent 12. feb. 2012 17:30

Verða Bandaríkin gjaldþrota?

Skuldavandi Bandaríkjanna er mörgum áhyggjuefni og hafa svartsýnustu menn fullyrt að gjald...  

Meira
Viðskipti erlent 12. feb. 2012 16:18

Segir Grikkland fara lóðrétt á hausinn ef áætluninni verður hafnað

Um sex þúsund manns mótmæla í Aþenu í Grikklandi á sama tíma og gríska þingið tekst á um a...  

Meira
Viðskipti erlent 12. feb. 2012 11:13

Papademos ítrekar mikilvægi þess að samþykkja aðgerðaráætlun

Forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, sagði við grísku þjóðina í sjónvarpsávarpi í...  

Meira
Viðskipti erlent 11. feb. 2012 03:13

Papademos varar við efnahagshamförum ef neyðarlán fást ekki

Gríska þingið og fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja eiga enn eftir að samþykkja aðgerða...  

Meira
Viðskipti erlent 11. feb. 2012 00:02

Lánshæfi 34 ítalskra banka lækkað

Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfi 34 ítalskra banka vegna s...  

Meira
Viðskipti erlent 10. feb. 2012 14:47

Barclays bankinn hagnaðist um 5,9 milljarða punda í fyrra

Breski bankinn Barclays hagnaðist um 5,9 milljarða punda í fyrra, eða sem nemur um ríflega...  

Meira
Viðskipti erlent 10. feb. 2012 08:30

Forstjóri Pimco gefur lítið fyrir áætlun Grikkja

Mohamed El-Erian forstjóri Pimco stærsta skuldabréfasjóðs heimsins og einn af helstu þunga...  

Meira
Viðskipti erlent 10. feb. 2012 07:04

FIH bankinn tapaði 26 milljörðum í fyrra

FIH bankinn í Danmörku tapaði 1,2 milljörðum danskra króna á síðasta ári, eða um 26 milljö...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 20:44

Skýrsla FBI um Steve Jobs opinberuð

Skýrsla Alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum um Steve Jobs hefur nú verið opinberuð. Í vitn...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 17:20

Samkomulag um afskriftir fasteignaskulda í höfn

Samkomulag sem snertir meira en milljón íbúa í Bandaríkjunum, sem eru eigendur fasteigna, ...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 14:23

Samkomulag um niðurskurð í Grikklandi

Grískir stjórnmálamenn hafa náð samkomulagi um niðurskurðaraðgerðir sem nauðsynlegt er að ...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 12:43

Fimmtíu milljörðum punda varið í að örva hagvöxt

Breski seðlabankinn hefur ákveðið að verja fimmtíu milljörðum punda í að örva efnahagslífi...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 09:59

Aðalhagfræðingur: Grikkir munu svíkja gefin loforð

Grikkir munu ekki standa við neitt af þeim loforðum sem gefin verða Alþjóðagjaldeyrissjóðn...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 09:42

Hagnaður Danske Bank undir væntingum

Hagnaður Danske Bank nam 1,7 milljörðum danskra króna, eða um 37 milljarðar króna eftir sk...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 07:29

Real Madrid er áfram auðugasta fótboltalið heimsins

Spænska úrvalsdeildarliðið Real Madrid heldur stöðu sinni sem auðugasta fótboltalið heimsi...  

Meira
Viðskipti erlent 09. feb. 2012 03:13

Allt í hnút í Grikklandi

Forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, tókst ekki að ná samkomulagi við forystumenn...  

Meira
Viðskipti erlent 08. feb. 2012 11:00

Gríðarleg verðmæti fólgin í Facebook

Facebook tilkynnti loks í síðustu viku að fyrirtækið hyg&e...  

Meira
Viðskipti erlent 08. feb. 2012 10:07

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju

Heimsmarkaðsverð á olíu fer aftur hækkandi. Tunnan af bandarisku léttolíunni er komin í tæ...  

Meira
Viðskipti erlent 08. feb. 2012 08:53

Markaður fyrir ódýrar kvikmyndir að stækka

Markaður fyrir ódýrar kvikmyndir hefur stækkað hratt undanfarin misseri í Bandaríkjunum. Í...  

Meira
Viðskipti erlent 07. feb. 2012 20:18

Rekstur Toyota gekk vonum framar

Rekstur japanska bílaframleiðandans Toyota gekk vonum fram á síðasta fjórðungi síðasta árs...  

Meira
Viðskipti erlent 07. feb. 2012 08:45

Mitt Romney kominn í bæinn

Mitt Romney, sem líklegur er sem frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum í ...  

Meira
Viðskipti erlent 07. feb. 2012 06:48

Mikil fjölgun á árásum tölvuþrjóta í Danmörku

Árásum tölvuþrjóta á tölvur og tölvukerfi í Danmörku fjölgaði um 25% í fyrra miðað við ári...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Skoðun

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ríkisvæðing er mesta hættan

Þorsteinn Pálsson
Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfirborðsmennsku í ...

Skoðun

Panikk í pólitík

Panikk í pólitík

Ólafur Þ. Stephensen
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í gær, sýna að mi...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti erlent / Sparnaður sagður bitna á fátækum