Körfubolti

Sparkar Curry öllum hinum fjórum í liði ársins út úr úrslitakeppninni?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Curry.
Stephen Curry. Vísir/Getty
Stephen Curry og félagar í Golden State Warriors komust í nótt í lokaúrslit NBA-deildarinnar í körfubolta eftir 4-1 sigur á Houston Rockets í úrslitum Vesturdeildarinnar.

Framundan er úrslitaleikir um meistaratitilinn á móti LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers en úrslitin hefjast 4. júní næstkomandi.

Stephen Curry var valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar á þessu tímabili og var að sjálfsögðu einn af fimm leikmönnum í liði ársins.

Curry endurskrifaði NBA-söguna með þessum i sigri á Houston Rockets í nótt því þá var ljóst að hann myndi mætta öllum hinum fjórum leikmönnum úrvalsliðsins í úrslitakeppninni í ár. Það hafði aldrei gerst áður.

Stephen Curry hefur þegar haft betur á móti Anthony Davis, Marc Gasol og James Harden og framundan er síðan einvígið á móti LeBron James.

Stephen Curry var með 33,8 stig, 7,3 stoðsendingar og 42 prósent þriggja stiga skotnýtingu þegar Golden State Warriors vann 4-0 sigur á Anthony Davis og félögum í New Orleans Pelicans í fyrstu umferðinni. Anthony Davis, sem var stór framherji í úrvalsliðinu, var með 31,5 stig og 11,0 fráköst að meðaltali í þessum leikjum.

Stephen Curry var með 24,5 stig, 6,5 stoðsendingar og 41 prósent þriggja stiga skotnýtingu þegar Golden State Warriors vann 4-2 sigur á Marc Gasol og félögum í Memphis Grizzlies í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Marc Gasol, sem var stór miðherji í úrvalsliðinu, var með 19,2 stig, 11,2 fráköst og 4,0 stoðendingar að meðaltali í þessum sex leikjum.

Stephen Curry var með 31,2 stig, 5,6 stoðsendingar og 49 prósent þriggja stiga skotnýtingu þegar Golden State Warriors vann 4-1 sigur á James Harden og félögum í Houston Rockets í úrslitum Vesturdeildarinnar. James Harden, sem var skotbakvörður í úrvalsliðinu, var með 28,4 stig, 7,8 fráköst og 6,4 stoðendingar að meðaltali í þessum fimm leikjum.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×