Innlent

Sparkaði kisunni sinni upp í loft og hló

Percy Love sá ekkert athugavert við athæfi sitt og sagði við lögreglumenn að hann og kisi myndu oft leika sér á þennan hátt.
Percy Love sá ekkert athugavert við athæfi sitt og sagði við lögreglumenn að hann og kisi myndu oft leika sér á þennan hátt.
Það eru oft ótrúlegar fréttir sem berast frá Bandaríkjunum en þessi er líklega með þeim furðulegri, svo vægt sé til orða tekið.

Percy Love, tuttugu og tveggja ára gamall maður frá Chicago, var handtekinn á dögunum eftir að lögreglumenn sáu hann sparka litlum kettlingi á opnu svæði skammt frá heimili sínu. Hann sparkaði kettlingnum um fjóra og hálfan metra og hló þegar að kisi lenti á jörðinni.

Lögreglumennirnir handtóku Love umsvifalaust en hann sá ekkert rangt við athæfið þegar lögreglumenn spurðu hvað væri eiginlega í gangi.

„Ég á þennan kött. Hann er harður af sér, við erum alltaf að leika okkur saman á þennan hátt. Þetta er bara köttur," sagði hann við lögreglumenn.

Áður en Love var keyrður upp á lögreglustöð var komið við á dýraspítala þar sem kisi litli fékk aðhlynningu. Dýralæknir segir að hann muni jafna sig.

Love var hinsvegar látinn fljótlega laus gegn tryggingu en mun mæta fyrir dómara þann 1. febrúar næstkomandi þar sem hann hefur verið ákærður fyrir slæma meðferð á dýrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×