Fótbolti

Spánn Evrópumeistari U17 kvenna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Spánn er Evrópumeistari U17.
Spánn er Evrópumeistari U17. vísir/heimasíða ksí
Spánn er Evrópumeistari U17 kvenna, en Spánn vann Sviss 5-2 í úrslitaleiknum sem fram fór á Vodafone-vellinum fyrr í dag.

Spánverjar tóku forystuna strax á fimmtu mínútu og tvöfölduðu þær forystuna með marki Garca á tólftu mínútu, en staðan var 2-0 í hálfleik.

Sviss byrjaði af krafti í síðari hálfleik, en það var samt sem áður Spánverjar sem skoruðu næsta mark og staðan orðin 3-0.

Géraldine Reuteler minnkaði muninn í 3-1 áður en Carmen Menayo kom Spáni aftur í 4-1. Liðin skoruðu svo sitthvort skrautlega markið áður en yfir lauk og lokatölur 5-2 sigur Spánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×