Spáir 5,4% verðbólgu í ágúst 19. ágúst 2011 10:59
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,6% í ágúst frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir eykst 12 mánaða verðbólga úr 5,0% í 5,4% í þessum mánuði. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að í mælingu ágústmánaðar munu vegast á hækkunaráhrif vegna sumarútsöluloka, verðhækkunar á íbúðamarkaði og lækkunaráhrif vegna eldsneytisverðs. „Í ágúst lýkur sumarútsölum og gerum við ráð fyrir nærri 6% hækkun á fata- og skóverði í mánuðinum (+ 0,3% áhrif í VNV). Jafnframt virðist lítið lát vera á verðhækkun á íbúðamarkaði, og gerum við ráð fyrir að áhrif hennar í ágúst verði til 0,1% hækkunar á VNV. Einnig teljum við að áhrif af kjarasamningum sem gengu í gildi í júníbyrjun séu enn að koma fram og munu þá m.a. hafa áhrif á verðlag á mat- og drykkjarvörur í mánuðinum (+0,1% áhrif í VNV) sem og á hótelum og veitingastöðum svo eitthvað sé nefnt,“ segir í Morgunkorninu. „Á móti þessum hækkunaráhrifum kemur þróun olíuverðs á heimsmarkaði sem hefur lækkað upp á síðkastið vegna ólgunnar á erlendum mörkuðum. Hefur sú lækkun komið fram að hluta til í eldsneytisverði hér á landi og teljum við að lækkun þess vegi til 0,1% lækkunar á VNV.“ Þá kemur fram að verðbólguhorfur fyrir yfirstandandi ár eru nú mun lakari en útlit var fyrir í upphafi árs. „Við gerum ráð fyrir að VNV hækki talsvert fram eftir vetri. Þannig spáum við samtals 1,3% hækkun vísitölunnar í september og október, þegar útsöluáhrif ganga til baka og áhrif kjarasamninga koma enn frekar fram,“ segir í Morgunkorninu. „Verðbólga mun þá mælast 6% í október, gangi spá okkar eftir, og verða yfir 6% fram yfir áramót. Í kjölfarið gerum við ráð fyrir að aftur dragi úr verðbólgunni og að hún mælist 4% yfir árið 2012. Ekki er hins vegar útlit fyrir að verðbólga verði við 2,5% markmið Seðlabankans fyrr en á árinu 2013, nema krónan styrkist talsvert og/eða orku- og hrávöruverð lækki umtalsvert svo eitthvað sé nefnt af þeim þáttum sem gætu dregið úr verðbólgunni á næstunni.“
Mest lesið „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Viðskipti innlent Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Loka Kristjánsbakaríi Viðskipti innlent Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Viðskipti innlent Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Sjá meira