Erlent

Sorpflutningabíl ekið inn í hóp pílagríma

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/epa
Að minnsta kosti sextán biðu bana og þrjátíu slösuðust þegar sorpflutningabíl var ekið inn í hóp pílagríma í Mexíkó í nótt.  Um var að ræða 200 manna hóp kaþólskra pílagríma í bænum Mazapil þegar sorpflutningabíllinn kom á ógnarhraða með fyrrgreindum afleiðingum.

Ökumaðurinn flúði vettvang samstundis. Málið er í rannsókn en talið er að bremsur bílsins hafi ekki virkað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×