Sport

Snorri tryggði sér silfur í þrettán gráðu frosti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenski göngugarpurinn Snorri Einarsson heldur áfram að standa sig vel og í morgun komst hann á verðlaunapall á alþjóðlegu FIS móti í Olos í Finnlandi.

Snorri Einarsson nældi sér þá í silfurverðlaun í 15 kílómetra göngu með frjálsri aðferð en hann hafði áður verið í áttunda sæti í 10 kílómetra göngu með hefðbundinni aðferð.

Þetta er frábær árangur hjá Snorra sem fékk fyrir þetta 39.24 FIS punkta. Þessi stig munu skila sér á næsta heimslista og færist Snorri því enn framar á listanum sem eru mjög góðar fréttir.

Með árangri sínum í gær þá hafi Snorri tryggt sér þátttökurétt í öllum lengri vegalengdum á Heimsmeistaramótinu í Lahti sem fram fer í febrúar 2017.

Snorri lét ekki krefjandi aðstæður stoppa sig í dag en mikill kuldi var í Finnlandi, eða um þrettán gráðu frost.

Snorri gekk mjög vel í dag og sótti á eftir því sem leið á gönguna. Hann var í fjórða sæti eftir fyrstu 5 kílómetrana og þriðja sæti eftir 10 kílómetra.

Lokaspretturinn dugði honum svo til silfurverðlauna en hann var einungis 0,8 sek á undan Perttu Hyvarinen sem endaði þriðji.

Finninn Lari Lehtonen vann gönguna en hann var 30,5 sekúndum á undan okkar manni.

Sturla Björn Einarsson, yngri bróðir Snorra, endaði í 102. sæti í þessari göngu í dag. Hann var tæpum fjórum mínútum á eftir bróður sínum.

Brynjar Leó Kristinsson tók einnig þátt í þessari göngu en hann var rétt tæpum fimm mínútum á eftir efsta manni og endaði í 119. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×