Erlent

Snjóflóðið í Noregi: „Börnin mín leika sér þarna“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Snjóflóðið var ekki stórt en bæði þykkt og þétt.
Snjóflóðið var ekki stórt en bæði þykkt og þétt. Mynd/Jón Vigfús Guðjónsson
Snjóflóðið sem féll í bænum Hammerfest í Noregi síðdegis í dag féll bókstaflega í bakgarðinum hjá Jóni Vigfúsi Guðjónssyni, Íslendingi sem búsettur er í bænum. Þrír drengir slösuðust í flóðinu sem féll á svæði sem er vinsæll leikstaður fyrir börn í hverfinu.

„Flóðið stöðvaði svona 20 metra frá eldhúsglugganum hjá mér,“ segir Jón Vigfús sem búsettur hefur verið í Hammerfest í fimm ár. „Krakkarnir í hverfinu leika sér oft á þessu svæði. Mínir krakkar voru að leika sér þarna síðast bara í gær en voru blessunarlega inni þegar snjóflóðið féll.“

Snjóflóðið féll í hlíð fyrir aftan íbúðarblokkina sem Jón býr í en lítið fjall er fyrir ofan blokkina. Um leið og Jón leit út um gluggann sá hann að snjóflóð hafði fallið enda hefur hann kynnst þeim áður.

„Þegar ég heyrði sírenuvælið leit ég út um gluggann og sá strax að þetta var snjóflóð. Ég hef komið ansi hraustlega nálægt þeim áður en ég var leitarmaður bæði í Súðavík og Flateyri þegar snjóflóðin féllu þar.“

Eins og sjá má er ekki ýkja langt frá blokkinni að hlíðinni þar sem flóðið féll.Mynd/Jón Vigfús Guðjónsson
Að sögn Jóns er ekkert sérstaklega snjóþungt í Hammerfest en í gær hafi skollið á leiðindaveður og töluverður snjór hafi safnast saman í hlíðina fyrir aftan blokkina. Snjóflóðið sjálft var ekki svo stórt en það sem fór af stað hafi bæði verið hart og þétt.

„Þessi hrúga þar sem þetta stoppaði er vel þétt og þung þó að flóðið hafi kannski ekki verið stórt. Snjódýptin þar sem sleppir uppi og snjóflóð fer af stað er líklega 1,5-2 metrar,“ segir Jón sem setur spurningamerki við snjóflóðagirðinguna sem sést á myndinni hér fyrir ofan.

„Girðingin sem sést á myndinni er í rauninni snjóflóðavörn en flóðið fellur fyrir neðan snjóflóðavörnina,“ segir Jón. „Það setur upp spurningamerki hvort þetta sé snjóflóðavörn eða hvort hún safni bara snjó sem verður svona?“

Í Hammerfest búa um 10.000 manns en skömmu eftir að flóðið féll voru um 30-40 björgunaraðilar mættir á svæðið til að hefja björgunaraðferðir. Fljótlega mætti þyrla á svæðið áður en búið var að ganga úr skugga um að drengirnir þrír, á aldrinum sjö til þrettán ára, hafi verið þeir einu sem lentu í flóðinu. Var þeim fljótlega komið á spítala og sluppu þeir án alvarlegra meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×