Erlent

Snjóflóðið á Ítalíu: Hafa fundið sex lík til viðbótar

atli ísleifsson skrifar
Mikið fannfergi hefur gert björgunarliði mjög erfitt fyrir.
Mikið fannfergi hefur gert björgunarliði mjög erfitt fyrir. Vísir/AFP
Björgunarlið á Ítalíu hefur nú fundið sex lík til viðbótar eftir snjóflóðið sem féll á Rigopiano hótelið í Abruzzohéraði í síðustu viku. Alls hafa því fundist fjórtán lík.

Fimmtán manna er ekki saknað, en talsmenn björgunarsveita segjast ekki hafa gefið upp alla von að finna fólk á lífi.

Síðastliðinn föstudag tókst að bjarga níu manns úr rústunum, meðal annars fjögur börn, og í gær fundust þrír hvolpar á lífi sem gaf björgunarliði nýja von.

Snjóflóðið varð á miðvikudagskvöldið í kjölfar jarðskjálfta á svæðinu og færðist stór hluti fjögurra hæða hótelsins heila tíu metra.

Mikið fannfergi hefur gert björgunarliði mjög erfitt fyrir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×