Innlent

Snjóflóðahætta á Tröllaskaga

Gissur Sigurðsson skrifar
Mikið snjóar nú á Tröllaskaga og er nú töluverð snjóflóðahætta.
Mikið snjóar nú á Tröllaskaga og er nú töluverð snjóflóðahætta. mynd/loftmyndir.is
Töluverð snjóflóðahætta er á utanverðum Tröllaskaga, að mati Veðrustofunnar, þar sem mikið er að snjóa í norðlægum áttum og búast megi við að snjóflóðahætta geti skapast í nýsnævinu. Þetta er þriðja hættustig af sex mögulegum.

Þá er talin nokkur snjóflóðahætta á norðanverðum Vestfjörðum og á Austfjörðum, en áfram er spáð snjókomu eða éljum á þessum slóðum, þannig að hætta getur aukist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×