Enski boltinn

Smalling búinn að framlengja við Man. Utd

Smalling skrifar hér undir nýja samninginn ásamt Louis van Gaal, stjóra félagsins.
Smalling skrifar hér undir nýja samninginn ásamt Louis van Gaal, stjóra félagsins. vísir/getty
Hinn sterki varnarmaður Man. Utd, Chris Smalling, er ekki á förum á næstunni.

Þessi 25 ára enski landsliðsmaður er búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið til ársins 2019.

Hann kom til Man. Utd frá Fulham árið 2010 og er búinn að vinna deildina tvisvar með félaginu.

Smalling hóf feril sinn hjá akademíu Millwall og spilaði svo fyrir utandeildarliðið Maidstone United áður en hann fór til Fulham árið 2008.

Varnarmaðurinn er búinn að spila 147 leiki fyrir Man. Utd og 16 leiki fyrir enska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×