Innlent

Slys á Ólafsfjarðarvegi

Slys varð á Ólafsfjarðarvegi við Selárbakka laust fyrir klukkan átta í kvöld þegar tveir bílar skullu saman úr gagnstæðri átt. Fjórir voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Akureyri en eru meiðsl þeirra ekki talin alvarleg.

Losa þurfti einn úr bíl sínum og var veginum lokað á meðan. Búið er að opna veginn að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×