Slást um vörumerkið Gamma fyrir dómi Haraldur Guðmundsson skrifar 18. janúar 2017 08:00 Gísli Hauksson, forstjóri Gamma Capital Management hf. og hluthafi í fjármálafyrirtækinu. Fréttablaðið/GVA
Deila um notkun og skráningu á vörumerkinu Gamma verður útkljáð fyrir dómstólum. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðar á fimmtudag um frávísunarkröfu fasteignafélagsins Gamma ehf. á dómsmáli sem hófst með stefnu fjármálafyrirtækisins Gamma Capital Management hf. Eigendur fasteignafélagsins hafa einnig stefnt síðarnefnda félaginu. „Þetta býður upp á rugling og við viljum fá úr þessu skorið hvað er rétt og hvað er rangt. Það eru stefnur á báða bóga en engin illindi eða neikvæðni af okkar hálfu. Gamma Capital Management rekur sitt fyrirtæki og gerir það vel en vonandi kemst niðurstaða í málið og þá munu menn væntanlega una henni og lífið halda áfram,“ segir Magnús Stephensen, stjórnarmaður og einn eigenda Gamma ehf.Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður Gamma Capital Management í málinu, staðfestir í samtali við Markaðinn að forsvarsmenn fyrirtækisins fari fram á að skráning Gamma ehf. á vörumerki fasteignafélagsins verði ógilt. Fyrrnefnda félagið á og rekur Almenna leigufélagið, annað stærsta leigufélag landsins á almennum markaði. Gamma ehf. er í eigu Magnúsar og Hannesar Hilmarssonar, forstjóra flugfélagsins Atlanta, og á og leigir út fasteignirnar Skólavörðustíg 7, Bergstaðastræti 4 og Týsgötu 8 ásamt nokkrum öðrum húsum í Reykjavík, Firmaheiti Gamma ehf. var skráð árið 2005 en Gamma Capital Management, sem er öllu umsvifameira fjármálafyrirtæki með yfir 115 milljarða króna í stýringu fyrir meðal annars lífeyrissjóði, fyrirtæki og einstaklinga, var stofnað árið 2008. Magnús Stephensen segir að nafnið sé honum mjög kært. „Þetta er búið að vera í minni fjölskyldu síðan 1969. Faðir minn rak fyrirtæki sem hét Gamma og sinnti ýmissi þjónustu fyrir auglýsingastofur, eins og innheimtu. Svo var nafnið sett á ís en við félagarnir tókum það svo upp aftur árið 2005 og sitjum nú báðir í stjórn okkar fasteignafélags sem heitir Gamma ehf. og hefur starfað síðan þá,“ segir Magnús. Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Viðskipti innlent Bein útsending: Má þetta bara? Viðskipti innlent Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Viðskipti innlent Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga Viðskipti innlent KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Viðskipti innlent Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Viðskipti innlent Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Viðskipti innlent „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Atvinnulíf Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Samstarf 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Bein útsending: Má þetta bara? Engin löndun í bili í Grindavík Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Kvika tók kipp Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Forstjóraskipti hjá Play Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálakerfið standi traustum fótum Sjá meira