Innlent

Skyndihjálparkunnáttan brást ekki þegar á hólminn var komið

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Elín H. Gísladóttir, Forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar.
Elín H. Gísladóttir, Forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar.
 „Þetta gekk allt saman mjög vel fyrir sig, í raun eins vel og hugsast getur,“ segir Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar um björgun mannsins sem varð meðvitundarlaus í lauginni í liðinni viku.

Talið er að maðurinn, sem er á níræðisaldri, hafi fengið hjartastopp meðan hann synti í lauginni en hann er hjartasjúklingur með gagnráð. Hann missti meðvitund en talið er að hann hafi ekki verið lengi undir yfirborðinu.

Elín segir að snarræði viðstaddra hafi skipt sköpum í að ekki fór verr en raun bar vitni. Maðurinn er nú á batavegi og ekki lengur á gjörgæsludeild. Það hafi þó tekið á alla viðstadda að fylgjast með björgunartilraununum.

„Það er alltaf óhugnanlegt að þurfa að hnoða og blása, sérstaklega í tilviki eins og þessu þegar blóðvökvi vall upp úr manninum. En við gátum ekki látið það á okkur fá og fórum samt munn í munn,“ bætir Elín við.

Hún segir að viðstaddir hafi fengið grunnáfallahjálp eftir að búið var að flytja manninn á Fjórðungssjúkrahúsið og að komið hafi til tals að veita frekar aðhlynningu til handa þeim sem urðu vitni að hinum voveiflega atburði.

„Enda er eðlilegt að fólk sé skelkað eftir svona atburð og ég vona að allir, jafnt mitt fólk sem og aðstandendur mannsins,  jafni sig sem fyrst.“ Elín segir að næsta mál á dagskrá verði að yfirfara aðstöðuna í sundlauginni og skyndihjálparkunnáttu starfsfólksins með það að markmiði að athuga hvort og hvar eitthvað sé ábótavant.

Hún ber skyndihjálparnámskeiðum vel söguna og segir að gaman sé að sjá að þau hafi skilað sér í kunnáttu sem komið hafði að gagni á ögurstundu.

„Maður getur aldrei verið viss um að sú þekking sem maður öðlast á skyndihjálparnámskeiðum skili sér þegar á hólminn er kominn og maður missi ekki einbeitinguna í hita leiksins. Því var ánægjulegt að sjá að allir brugðust hárrétt við og notuðu einmitt handtökin sem við höfum lært. Einhvers staðar „þarna á bak við“ var þekkingin eftir allt saman,“ segir Elín H. Gísladóttir, stolt af sínu fólki.


Tengdar fréttir

Kominn úr öndunarvél

Maðurinn er á níræðisaldri og fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugar Akureyrar í liðinni viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×