Enski boltinn

Skrtel ekki búinn að semja við Fenerbahce

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Skrtel í leik á EM.
Skrtel í leik á EM. vísir/getty
Í gær spurðist það út að Slóvakinn Martin Skrtel væri búinn að semja við tyrkneska félagið Fenerbahce en það er ekki rétt.

Skrtel er klárlega á förum frá Liverpool og þó svo hann sé með tilboð frá tyrkneska félaginu er hann ekki búinn að skrifa undir.

Umboðsmaður hans á von á tilboðum frá fleiri félögum og farið verður yfir þau er Skrtel lýkur keppni með Slóvökum.

Hann er falur fyrir 5,5 milljónir punda, eða tæpan milljarð króna. Besiktas og Galatasaray er sögð vera til í að greiða sömu upphæð.

Það bendir því ansi margt til þess að Skrtel fari til Tyrklands en hvort hann endi hjá Fenerbahce verður tíminn að leiða í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×