Heilsa

Skráning í Meistaramánuð hafin!

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Meistaramánuður hefst eins og síðastliðin ár, þann 1. október, næstkomandi, en skráning er þegar hafin.

Yfir tíu þúsund manns skráðu sig til leiks á síðasta ári, og hefur átakið vaxið í vinsældum með ári hverju. Allir geta tekið þátt í Meistaramánuði.

Þátttakendur átaksins setja sér sjálfir reglur. Í fyrra voru yngstu þátttakendurnir á leikskóla en sá elsti níræður, þannig að markmið fólks eru jafn ólík og þau eru mörg.

Stöð 2 verður svo með vikulegan þátt, líkt og í fyrra, þar sem þátttakendum er fylgt eftir, en hann verður í umsjón Birtu Björnsdóttur, fréttakonu Stöðvar 2.

Meðal markmiða sem fólk hefur sétt sér í gegnum árin eru:

  • Lesa meira
  • Ekki skoða símann upp í rúmi
  • Heimsækja ömmu og afa oftar
  • Sleppa áfengi allan mánuðinn
  • Hætta að reykja
  • Gera hluti sem það hefur lengi frestað eins og að panta tíma hjá tannlækninum
  • Mála mynd á hverjum degi
  • Spara pening
  • Læra að elda eina mömmuuppskrift í viku
  • Gera eitthvað uppbyggilegt með börnunum eða frændsystkinum
  • Gera góðverk
  • Ganga á eitt fjall í viku


Eins og fyrr segir er skráning hafin. Hægt er að skrá sig hér.

Heilsuvísir hvetur sem flesta til að taka þátt í Meistaramánuði.


Tengdar fréttir

Upplagt að nota Meistaramánuð til að hætta

Fjórtán prósent Íslendingar reykja daglega. Teitur Guðmundsson læknir segir nákvæmlega ekkert jákvætt við að reykja og finnst upplagt að reykingamenn noti meistaramánuð og önnur álíka tilefni til að hætta.

Markmið geta breytt lífsgæðum

Þorsteinn Kári Jónsson, einn upphafsmanna Meistaramánaðar, breytti lífi sínu til frambúðar árið 2008 þegar hann setti sérmarkmið í einn mánuð. Nú taka fleiri þúsund manns þátt í Meistaramánuði.

Tókst hið ómögulega

Atli Fannar Bjarkason, aðstoðarmaður formanns Bjartrar framtíðar náði markmiði sínu í réttstöðulyftu sem hann hafði talið ómögulegt, 180 kíló. Hann át einnig tvo kexpakka á þremur mínútum.

Gleðilegan Meistaramánuð

Meistaramánuðurinn varð upphaflega til árið 2008 þar sem tveir háskólanemar í Kaupmannahöfn ákváðu að taka sig rækilega á fyrir prófin og lifa eins og meistarar í heilan mánuð.

Markmið eru fögur

Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari vill verða betri hlaupakona og æfir klifur í meistaramánuðinum. Hún segir fegurð felast í að setja sér markmið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×