Handbolti

Skotsýning Snorra Steins í Frakklandi | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson er að spila frábærlega í Frakklandi.
Snorri Steinn Guðjónsson er að spila frábærlega í Frakklandi. mynd/sa-hb.com
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi Sélestad í frönsku 1. deildinni í handbolta, hefur skorað nánast að vild það sem af er á tímabilinu.

Snorri Steinn hefur spilað sjö leiki á það sem af er og skorað 57 mörk eða 8,14 mörk í leik. Skotnýtingin er heldur ekkert slor eða 61,96 prósent.

Einn af bestu leikjum Snorra var fyrr í þessum mánuði þegar hann skoraði tíu mörk og gaf þrjár stoðsendingar á heimavelli í tapleik gegn Pays D'Aix.

Brot úr leiknum má sjá hér að neðan, en Snorri fer mikinn á fyrstu mínútum myndbandsins. Hann sést gefa eina glæsilega stoðsendingu eftir að drippla með boltann upp allan völlinn og svo skorar hann tvö stórkostleg mörk fyrir utan punktalínu.

Þrátt fyrir frammistöðu Snorra Steins á tímabilinu er liðið í basli í neðri hluta deildarinnar með sex eftir eftir tvo sigra og tvö jafntefli í fyrstu tíu umferðum deildarinnar.

Í viðtali á heimasíðu frönsku 1. deildarinnar fagnar Jean-Luc Le Gall, þjálfari Sélestad, sigri á Tremblay í síðustu umferð en segir liðið vera að berjast fyrir lífi sínu.

Hann þakkar sigurinn gegn Tremblay frammistöðu alls liðsins, en hann hefur lagt áherslu á að fleiri en Snorri taki ábyrgð inn á vellinum.

„Vísvitandi dreifði ég álaginu í leiknum og leyfði Snorra að hvíla þó við stólum á hann. Stundum gerum við of mikið af því án þess að átta okkur á því. Það þurfa allir leikmennirnir að vita að liðið mun vinna leikina saman en ekki einn leikmaður,“ segir þjálfarinn.


LNH D1 2014-2015 J09 SELESTAT AIX by SELESTAT_ALSACE_HANDBALL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×