Handbolti

Skotið hennar festist á stönginni | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Suzana Lazovic.
Suzana Lazovic. Vísir/AFP
Svartfellingar höfðu ekki heppnina með sér í gærkvöldi í 22-21 tapi á móti Dönum á EM í kvenna í handbolta.

Danir tryggðu sér eins marks sigur á lokamínútunni og stelpurnar í liði Svartfjallalands stóðu eftir stigalausar.

Eitt atvik var kannski táknrænt fyrir leikinn því hlutirnir féllu ekki með Svartfjallalandi í leiknum.

Ótrúlegt atvik varð á úrslitastundu í leiknum þegar línumaðurinn Suzana Lazovic skaut í stöngina þegar hún gat jafnað metin í 21-21.

Lazovic hafði laumað sér niður í vinstra hornið eftir gott samspil og leikkerfi liðsins.

Skot Suzana Lazovic fór ekki bara í stöngina heldur festist boltinn á stönginni.

Þetta var eina skotið sem Suzana Lazovic klikkaði á í leiknum en hún hafði skorað úr þremur fyrstu skotunum sínum.

Það er hægt að sjá þetta skrýtna stangarskot hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×